

Eignaborg sími 564-1500 er með til sölu skrifstofu húsnæði að Hamraborg 5 Kópavogi 2 hæð, húsnæði er skipt í þrjú herbergi og eru tvö í útleigu.
Um er að ræða eign á 2. hæð, 68,8m2 samk. FMR, séreign með sameign og er 85m2 hlutfallslegur uppbyggingarréttur á 4. hæð.
Eignin skiptist í 20 m2 (sem nú er í langtímaleigu), 31,5 m2 og 17,9 m2 (sem nú er í langtímaleigu) nettóstærðir.
Vaskur og rennandi vatn er í sérhverju herbergi. Plastparket er á gólfi allra herbergja, nýr dúkur á gangi og stigahúsi.
Sameiginleg salerni eru á hæðinni og sameiginleg geymsla.
Húsið er nýlega tekið í gegn, skipt um glugga og fög, húsið klætt að utan með innbrenndri álklæðningu og nýbúið að dúkleggja sameign og mála.
Fjöldi bílastæða fyrir utan og í kring, auk aðgangs að bílageymsluhúsi handan götunnar.
Öll þjónusta í kring, bankar, sparisj., pósthús, bakarí, matvöruverslun, bóka- og ritfangaverslun, veitingastaðir, kaffihús o.m.fl.
Falskt loft á hæðinni fyrir neðan, ef þörf er á t.d. lögnum og slíku.
Á hæðinni er tannlæknastofa og tannsmíðaverkstæði
Leigutekjur á mánuði eru yfir 50.000,- kr.
Húsgjöld eru um 11.000,- kr.