

Fasteignasala Vestfjarða kynnir: Hólsvegur 13 Bolungarvík.
Um er að ræða stórt steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðingu. Hluti hússins var byggður snemma á síðustu öld en meginhluti hússins var byggður 1948. Húsið er vel bygg og hátt til lofts. Komið inn í litla forstofu, innaf henni er gangur eftir endilöngu húsinu með beykiparketi. Eldhús er með dúkflísum á gólfi. Innrétting er upprunalega að neðan en efri skápar eru með beykispón og rennihurðum. Gler virðist vera þokkalegt þótt gamalt sé. Svefnherbergi með nýju parketi. Innihurðir eru hvítlakkaðar fullningahurðir. Tvær samliggjandi stofur að ofanverðu . Fatahengi í gangi. Í suðurhutanum er svefnherbergi, skápar með rennihurðum. Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi. Þaðan eru svaladyr út á hornsvalir. Baðherbergi með dúk á gólfi, flístar upp á miðja veggi, sturtuklefi. Farið niður teppalagðan stiga á neðri hæð. Sérinngangur á neðri hæð. Flísar í anddyri, gangur teppaklæddur. Stór geymsla með máluðu gólfi. Eldhús með gamalli innréttingu. Stór stofa með nýju parketi. Í norðurenda er miðstöðvarklefi með rafmagnstúpu. Innangengt í stórt þvottahús með snúrum. Stórt herbergi að ofanverðu. Lítið baðherbergi með sturtubotni og hengi. Raflagnir hafa verið endurnýjaðar ásamt töflu á neðri hæð. Ofnalagnir eru upprunalegar en sjálfvirkir ofnkranar. Veysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að mestu. Bílskúr er úr timbri og klæddur með álklæðningu. Hann er með steyptu gólfi. Eftir að einangra veggi og þak og klæða. Ný rúlluhurð og fjarstýring.
___________________________________________________________________________