Skilmálar
Þær eignir sem skráðar eru inn á fasteignir.is fara við skráningu inn í gagnagrunn sem er í eigu fasteignir.is. Fasteignir.is er heimilt að nýta grunnana til að taka saman eða láta taka saman almennar upplýsingar sem mikilvægar eru fasteignamarkaðinum og hafa upplýsingagildi. Tilgangurinn er að hægt sé að afla upplýsinga sem geta m.a. reynst þjóðfélagslega mikilvægar, jafnt neytendum sem fasteignasölum. Slíkar upplýsingar fara í einu og öllu eftir lögum um persónuvernd, eru almennar og aldrei rekjanlegar á tilteknar fasteignir.

