Fasteignaleitarvefur með hagnýtum upplýsingum á fimm tungumálum
Fasteignir.is er nýr fasteignaleitarvefur á vegum Félags fasteignasala. Hann geymir bráðlega allar skráðar eignir sem félagsmenn í Félagi fasteignasala auglýsa til sölu fyrir hönd viðskiptavina sinna. Fasteignir.is verður því innan skamms stærsti fasteignaleitarvefur landsins.
Tekur mið af sérþörfum
Fasteignir.is hefur að geyma hagnýtar leiðbeiningar, sem nauðsynlegt er að hafa til hliðsjónar við kaup eða sölu fasteignar. Þessar upplýsingar eru veittar á fjórum tungumálum auk íslensku; ensku, pólsku, spænsku og tælensku. Einnig tekur nýi vefurinn sérstakt mið af þörfum eldri borgara við fasteignakaup eða –sölu.
Aukið traust
Megintilgangur þessa fasteignaleitarvefjar er að standa vörð um faglega og trausta þjónustu löggiltra fasteignssala og bæta hana enn meir. Það er einarður vilji félagsmanna og þessi fasteignaleitarvefur er einn þáttur í þeirri viðleitni. Þjónusta á fleiri tungumálum vegur þar þungt enda eru einstaklingar, sem hafa annað móðurmál en íslensku, sívaxandi hópur kaupenda og seljenda fasteigna hér á landi.
Eingöngu löggiltir fasteignasalar
Með þessum vef eru fasteignasalar einnig og ekki síður að freista þess að skilgreina sig betur og skýrar gagnvart öðrum aðilum sem stunda fasteignamiðlun hér á landi án þess þó að vera löggiltir fasteignasalar. Það er mikið hagsmunamál fyrir bæði seljendur og kaupendur eigna að þeir geti treyst á fagmennsku og traust þeirra sem annast umsýsluna. Viðskiptaráðherra hefur sömuleiðis lagt ríka áherslu á aukna neytendavernd og það fór því vel á því að hann opnaði þennan vef með formlegum hætti þann 28. ágúst 2008.
Vefur þessi keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum:Hugsandi Menn

