fasteignasölur.is
SPÁNARHEIMILI - Albir - Einbýli
1 af 86

Um eignina

FASTEIGNAMIÐLUN OG SPÁNARHEIMILI kynna;

Glæsilegt einbýlishús sem er staðsett í flottu hverfi í Albir Hills norður af Alicante en Albír er lítill, fallegur strandbær staðsettur um 60 km frá Alicante. Það tekur um 5 mínútur að ganga niður í glæsilegan miðbæ Albir og á ströndina sem er aldeilis glæsileg og margrómuð fyrir öll sín þægindi.

Lóðin er 755 fm sem er umkringd góðri girðingu og aðgengið inn á lóðina í gegnum stórt rafmagnshlið.  Glæsilegur upplýstur garður ásamt upphitaðri flottri sundlaug, útieldhúsi vel útbúnu, flottu útisvæði og er garðurinn með sjálfvökvunarkerfi.

Húsið sjálft er 240 fm á tveimur hæðum með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum ásamt rúmgóðum bílskúr.

Nánari upplýisngar; Kristinn í síma 8200762 eða á tölvuposti fasteignamidlun@spanarheimili.is

Á jarðhæðinni er falleg stofa með 6 metra lofthæð og rafmagns arin, opið rými inn í glæsilegt fullútbúið eldhús. Einnig er þvottahús með þvottavél og þurrkara á jarðhæðinni og eitt gesta svefnherbergi með einkabaðherbergi.

Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi bæði með sér baðherbergi. Hjónaherbergið er einnig með flottu gufubaði og er aðgengi út á svalir með frábæru útsýni yfir Albir og Miðjarðarhafið, öll herbergir eru með góðum skápum.

Jarðhæðin og baðherbergin á efri hæðinni eru með gólfhita.

Öll húsgögn fylgja með fyrir utan nokkra persónulega muni eins og gerist og gengur í svona viðskiptum.

Þessi eign er fyrir vandláta sem staðsett er á frábærum stað á Costa Blanca ströndinni norður af Alicante borg
 
Bókaðu einkakynnigu hjá okkur hér;
https://spanarheimili.is/einkakynning/

Allt um kaupferlið á Spáni;  
https://spanarheimili.is/kaupferlid/ 

Skoðunarferðir til Spánar; 
https://spanarheimili.is/skodunarferdir/

Finnum draumaeignina saman; 
https://spanarheimili.is/draumaeignin/ 

SPÁNARHEIMILI - Albir - Einbýli

1000 Útlönd - Annað
166.900.000 kr.695 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð240 m²Herbergi4FasteignanúmerF12
Skráð hjá
HeimilisfangHáaleitisbraut 58-60, 108 ReykjavíkSími511-3101

Allar 86 myndir

Upp ↑