Persónuverndarstefna
Uppfært 2. september 2026
Þessi stefna lýsir því hvaða persónuupplýsingum fasteignasölur.is safnar, hvers vegna, hverjir vinna þær og hvaða réttindi þú átt. Ábyrgðaraðili er Think Software ehf.
Hverju er safnað
Þú getur skoðað allan vefinn án þess að gefa upp nokkrar upplýsingar. Við notum hvorki auglýsinganetkerfi né rakningarkökur. Innskráning er valfrjáls og aðeins nauðsynleg til að vista leitir og fá tilkynningar.
Persónuupplýsingum er aðeins safnað þegar þú sendir fyrirspurn um eign. Þá vistum við nafnið þitt, netfang, símanúmer ef þú gefur það upp, skilaboðin sjálf, hvaða eign fyrirspurnin varðar og hvenær hún var send. Fyrirspurnin er send áfram til fasteignasölunnar sem hefur eignina á skrá, ásamt IP-tölu þinni svo salan geti metið hvort um ruslpóst sé að ræða. IP-talan er ekki vistuð hjá okkur — hún fylgir aðeins póstinum.
Heimsóknartalning. Við teljum hversu oft hver eign er skoðuð. Til þess er IP-tala þín dulkóðuð með einstefnuaðgerð ásamt salti sem breytist daglega — útkoman er ekki afturkræf og verður ekki rakin til þín, hvorki milli eigna sama dag né milli daga. IP-talan sjálf er aldrei vistuð, engin vafrakaka er notuð og engin gögn fara til þriðja aðila. Sami gestur telst einu sinni per eign á dag.
Vefgreining. Við notum Plausible Analytics til að sjá hversu margir heimsækja vefinn og hvaðan þeir koma. Plausible setur engar vafrakökur, safnar engum persónugreinanlegum upplýsingum og rekur þig ekki milli vefsvæða. Engin gögn eru notuð til auglýsinga og engin seld áfram. Þess vegna þarf þessi vefur ekkert samþykkisgluggann fyrir kökur.
Notendareikningur (valfrjáls). Kjósir þú að vista leit eða merkja eign biðjum við um netfang og ekkert annað — ekkert lykilorð, ekkert nafn. Þú skráir þig inn með hlekk sem við sendum í póstinum. Við geymum netfangið, þær leitir sem þú vistar, þær eignir sem þú merkir og hvenær þú skráðir þig síðast inn.
Nýlega skoðað. Á meðan þú ert innskráð(ur) skráum við hvaða eignir þú opnar og hvenær, svo þú finnir þær aftur á „Mínar síður“. Þessi skrá er aðeins sýnileg þér, tengist reikningnum þínum en ekki IP-tölu eða tæki, og nær 30 daga aftur í tímann. Þú getur eytt hverri færslu fyrir sig. Það sem þú skoðar óinnskráð(ur) er hvergi skráð á þig og tengist reikningnum aldrei eftir á.
Til hvers
Fyrirspurnin er send áfram til viðkomandi fasteignasölu svo hún geti svarað þér. Afrit er varðveitt hjá okkur svo hægt sé að staðfesta að fyrirspurn hafi borist ef hún skilar sér ekki. Vinnslugrundvöllur er samningur — þú sendir fyrirspurn til að fá svar.
Tilkynningar. Hafir þú vistað leit eða merkt eign sendum við þér póst þegar ný eign passar við leitina eða verð lækkar á eign sem þú merktir — á þeirri tíðni sem þú velur sjálf(ur). Vinnslugrundvöllur er samþykki, og hverjum pósti fylgir hlekkur til að hætta. Þú getur líka eytt vöktun eða reikningi hvenær sem er á „Mínar síður“.
Við seljum aldrei upplýsingar og notum þær ekki í markaðssetningu. Þú færð engan póst sem þú hefur ekki sjálf(ur) beðið um.
Hverjir fá upplýsingarnar
Fasteignasalan sem á eignina fær fyrirspurnina. Eftir það er hún ábyrgðaraðili þeirra samskipta og hennar eigin persónuverndarstefna gildir.
Fyrirspurnin þín fer um þrjá þjónustuaðila: DigitalOcean hýsir vefinn og gagnagrunninn (London, EES), Postmark sendir tölvupóstinn, og Cloudflare annast netþjónustu og ruslpóstvörn. Allir vinna eingöngu í okkar umboði.
Að auki sækir vefurinn kortaflísar frá MapTiler (sem byggir á gögnum frá OpenStreetMap) og letur frá Google Fonts. Þeir fá IP-tölu þína eins og gerist við hverja vefbeiðni, en engar upplýsingar sem þú slærð inn. MapTiler setur engar vafrakökur og geymir IP-tölur í allt að tvo mánuði vegna öryggiseftirlits.
Ruslpóstvörn (Turnstile)
Til að verjast sjálfvirkum ruslpósti notum við Cloudflare Turnstile á fyrirspurnarforminu. Það keyrir ósýnilega og krefst engra aðgerða af þér. Turnstile safnar takmörkuðum tæknilegum upplýsingum um vafrann til að greina hvort um vélmenni sé að ræða. Cloudflare notar þær ekki til að rekja þig milli vefsvæða eða til auglýsinga.
Um vinnsluna gildir Turnstile Privacy Addendum frá Cloudflare.
Kökur
Við setjum engar rakningarkökur. Vefgreiningin sem við notum (Plausible) er cookie-laus og auðkennir þig ekki — sjá kaflann um vefgreiningu að ofan. Skráir þú þig inn setjum við eina tæknilega nauðsynlega köku sem heldur þér innskráðum (undirrituð, ekki læsileg af öðrum vefsvæðum, gildir í hálft ár og framlengist á meðan þú notar vefinn). Hún fylgist ekki með þér utan fasteignasölur.is. Turnstile kann að setja tæknilega nauðsynlega köku í öryggisskyni.
Varðveislutími
Fyrirspurnir eru varðveittar í 24 mánuði og er þá eytt.
Notendareikningur og það sem honum fylgir — netfang, vistaðar leitir og vistaðar eignir — er geymt á meðan reikningurinn er til. Eyðir þú honum hverfur allt saman strax. Innskráningarhlekkir renna út eftir 15 mínútur og gilda aðeins einu sinni.
Skráin yfir nýlega skoðaðar eignir er eytt sjálfkrafa eftir 30 daga, hverri færslu fyrir sig.
Þú getur beðið um eyðingu hvenær sem er, sjá hér að neðan.
Eignaupplýsingar
Upplýsingar um eignir í sölu — heimilisföng, verð, myndir og lýsingar — koma frá mbl.is samkvæmt skriflegu leyfi. Þær eru ekki persónuupplýsingar um þig. Nöfn og tengiliðaupplýsingar fasteignasala birtast í starfstengdu samhengi.
Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, leiðréttingu þeirra, eyðingu og andmælum við vinnslu. Sendu beiðni á personuvernd@fasteignasolur.is og við svörum innan mánaðar.
Teljir þú vinnsluna brjóta gegn persónuverndarlögum máttu senda kvörtun til Persónuverndar.
Breytingar
Verði stefnunni breytt uppfærum við dagsetninguna efst. Efnislegar breytingar á því hvernig upplýsingar eru notaðar verða tilkynntar á vefnum.