fasteignasölur.is
Smáragata 9
1 af 19

Um eignina

Heimaey fasteignasala kynnir glæsilegt einbýlishús að Smáragötu 9, VM, með einhverju flottasta útsýni sem um getur. Úr stofuglugga sést allur fjallahringurinn frá austri til vesturs.  
Eignin er að heildarstærð 158,8 m2, þar af 40,9 m2 bílskúr. Að framanverðu er snyrtilegur, niðurgrafinn, afgirtur sólpallur með steyptri plötu og niðurfalli. Garður gróinn og afgirtur. Húsið stendur hátt með yfirsýn yfir Vestmannaeyjabæ.
Nýr sólpallur með heitum potti vestan við hús með útgangi úr bæði stofu og garði.  

 
Eignin telur:  
Anddyri: mjög stórt, flísar á gólfi, skápar og innfelld ljós í lofti.
Þvottahús: inn af anddyri, rúmgóð innrétting, flísar á gólfi.  
Bílskúr, inn af þvottahúsi. Flísalagður með rafmagni, heitu og köldu vatni.  
Gangur/hol: parket á gólfi.
Herbergi 1: parket á gólfi, fataherbergi inn af herbergi.
Snyrting: falleg innrétting, kappalýsing, innfelld ljós í lofti, skápur, baðkar/sturta, handklæðaofn og upphengt WC.  
Herbergi 2: parket á gólfi og fataskápur frá gólfi upp í loft. 
Herbergi 3: parket á gólfi.
Stofa: opin og rúmgóð, stórir gluggar til norður og vesturs, parket á gólfi og hljóðdempandi viðarrimlar á sjónvarpsvegg.
Eldhús: viðar innrétting, flísar á bekk og milli skápa og parket á gólfi.
Geymsluloft: loftlúga er í þvottahúsi. Gott geymslurými. Samanbrjótanlegur stigi úr loftlúgu. 
 
Að utan:  

Stórt steypt bílaplan fyrir framan bílskúr. Garður gróinn og afgirtur.  
Steyptur, niðurgrafinn sólpallur með kartöflugeymslu. Nýr sólpallur úr timbri vestan eignar með heitum potti.
 
Einstaklega falleg eign þar sem handverk er til fyrirmyndar. Eignin stendur ofarlega með ómetanlegu útsýni yfir Eyjuna.
 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Heimaey þjónustuver
74.900.000 kr.472 þ./m²
−15,8% á 1 ári
21. júlí 2026Þinglýstur kaupsamningur
89.000.000 kr.560 þ./m²
+21,9% á 3 árum
13. apríl 2023Þinglýstur kaupsamningur
73.000.000 kr.460 þ./m²
+73,8% á 4 árum
19. september 2019Fyrsta sala
42.000.000 kr.264 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Smáragata 9

900 Vestmannaeyjar
74.900.000 kr.472 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1996TegundEinbýlishúsStærð158,8 m²Herbergi4InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2184634Fasteignamat37.550.000 kr.Brunabótamat44.300.000 kr.
Skráð hjá
Heimaey þjónustuver
HeimilisfangBárustígur 1, 900 VestmannaeyjarSími481-1114

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑