fasteignasölur.is
Mil Palmeras TE-851
1 af 14

Um eignina

Lind Fasteignasala og Novus Habitat kynna nýtískulegar og glæsilegar eignir í Los Alcázares: 

Virkilega vel staðsettur kjarni, í náttúrulegu og rólegu umhverfi þar sem öll helsta þjónusta og afþreying er innan seilingar, aðeins í 1,5km fjarlægð frá Mil Palmeras ströndinni, á milli Campoamor og Torre de la Horadada
Kjarninn er með gott aðgengi fyrir fólk með skerta hreyfigetu eða fólk í hjólastólum. Sérstök lyfta fyrir hreyfihamlaða er í sundlauginni einnig eru breiðir gangar og hurðarop. Áhersla er lögð á að öryggi íbúa sé í fyrirrúmi og verða allar íbúðir með öryggishnapp fyrir neyðarþjónustu allan sólarhinginn. 

Kjarninn býður upp á íbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum og samanstanda þær af sérútbúnu baðherbergi, opinni stofu-borðstofu, nútímalegu eldhúsi og verönd. Sundlaug, líkamsræktarstöð og sjúkraþjálfunarsalur eru í sameigninni. 
Áætluð afhending: 30. júní 2024

Nánari upplýsingar:
Kristján Þórir Hauksson löggiltur fasteignasali, s: 696-1122 eða kristjan@fastlind.is

Mil Palmeras TE-851

1000 Útlönd - Annað
Tilboð
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð83 m²Herbergi3LyftaFasteignanúmerF134679034
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Allar 14 myndir

Upp ↑