fasteignasölur.is
Norðurhóp 40
1 af 52

Um eignina

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Norðurhóp 40, 240 Grindavík, birt stærð 239.0 fm glæsilegt parhús, þar af er bílskúr 31,9 fm. Heildar stærð íbúðar er 207 fm. Fjögur svefnherbergi og auðvelt að útbúa fimmta svefnherbergið.

Forstofa og hol með granítflísum, gengið niður í stofu og eldhús. Hátt til lofts. Útgengni út á sólpall með heitum pott. Mjög skjólsamur pallur. Frá holi er gengið inn í herbergjagang gegnum stórt sjónvarpshol. Flísar á veggjum gefa flott útlit. Þrjú svefnherbergi, þvottahús og bað. Útgengni út á aflokaða steypta verönd. Eignin er að hluta til á tveim hæðum og heildar stærð hennar meiri þar sem hluti af efrihæð er undir súð. Gengið upp á efrihæð um stiga með granít flísum, þar eru tvö rými, annað er svefnherbergi hitt er geymsla/rými/herbergi. Að utan er eignin með góðum sólpöllum. Skjólrík svæði.
Um er að ræða mjög vandaða og nýstárlega eign, loft hæð og innréttingar fá að njóta sín vel. 

***  Skjólsamur pallur með potti
*** 4 svefnherbergi og möguleiki á fimmta herberginu
*** Nýlegt hverfi sem er vinsælt meðal barnafólks
*** Lóð frágengin með steyptu bílaplani.

Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
 
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með Granít flísum og góðum skáp. Bjart og opið rými.
Eldhús og stofa í opnu rými hátt til lofts og góð lýsing. Stóri gluggar sem gefa góða birtu út í stofu. Útgengt út á sólpall. Eldhúsinnrétting frá Fríform. Harðparket á gólfi stofu og Granít flísar á eldhúsi.
Á efrihæð eru tvö rými sem auðvelt er hægt að vera með sem tvö svefnherbergi. Annað er opið rými í dag og getur nýst sem vinnuaðstaða eða auka sjónvarpshol en auðvelt er að breyta þvi rými í fimmta svefnherbergið. Hitt herbergið er með geymslu undir súð.
Sjónvarpshol hátt til lofts og rúmgott rými, flísalagður sjónvarpsveggur og kaplar inn í vegg. Granít flísar á gólfi. Inn af sjónvarpsrými er herbergjagangur
Herbergi á herbergjagangi eru þrjú, öll í góðri stærð.
Þvottahús með flísum á gólfi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið út á yfirbyggða steypta hliðarverönd frá þvottahúsi
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, flottar flísar. Walk in sturta, baðkar, upphengt salerni og keramik vaskur og borð. 
Umhverfi: Sólpallur baka til aflokaður, gott skjól og veðursæld á góðum deigi. Heitur pottur. Bílaplan er nýlega steypt með snjóbræðslu. Lóð tyrfð ásamt kominn er gróður.
Bílskúr er skráður 31.9 fm. Heitt og kalt vatn. Auðvelt að breyta í auka íbúð.

Fallegt og stórt fjölskylduhús, hverfið er að fullu byggt upp og vinsælt fjölskylduhverfi. Stutt i Grunnskóla og íþróttamannvirki.
 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62,  240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · ALLT fasteignasala
98.000.000 kr.410 þ./m²
+308,3% á 18 árum
26. janúar 2009Fyrsta sala
24.000.000 kr.100 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Norðurhóp 40

240 Grindavík
98.000.000 kr.410 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2009TegundRað-/parhúsStærð239 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23149794Fasteignamat78.150.000 kr.Brunabótamat104.890.000 kr.
Skráð hjá
ALLT fasteignasala
HeimilisfangReykjanesbær - Mosfellsbær - Grindavík, 240Sími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑