fasteignasölur.is
Tónahvarf 5 - 0102
1 af 15

Um eignina

Til leigu hjá Reykjastræti fasteignafélagi: 307,6 fm fjölnotahúsnæði á 1. hæð, rými 0102 í Tónahvarfi 5.

Nýtt staðsteypt fjölnotahúsnæði ásamt millilofti sem skiptist í opið vinnurými, kaffistofu, salernis- og ræstirými. Um 25 - 30% af heildarstærð er steypt milliloft sem hægt er að nýta sem skrifstofur eða minni lager. Lofthæðir eru frá 6 - 7,5 metrum að hæð og milliloft frá 3 - 4,2 metrum
að hæð.

Mjög gott útsýni á efri hæðum með stórum útsýnisgluggum sem eru allt að 1,8 metri að hæð sem tryggir mikla birtu innan rýmis. Svalir eru á efri hæðum um 10 fm að stærð.

Rýmin henta vel undir ýmisskonar starfsemi svo sem heildsölur, skrifstofur, verslanir og vörulager.

Möguleiki er að leigja aðliggjandi rými í saman húsi:
Rými 0101: 420,2 fm
Rými 0201: 699,3 fm
Rými 0202: 569,5 fm


Hafið samband við Reykjastræti fasteignafélag í síma 571-4990 eða í netfanginu utleiga@reykjastraeti.is til að fá nánari upplýsingar. Hægt er að skoða aðrar eignir félagsins á www.reykjastraeti.is.

Reykjastræti er fasteignafélag sem leggur áherslu á að klæðskerasauma ný atvinnurými fyrir sína viðskiptavini. Meirihluti eigna félagsins hafa verið innréttaðar fyrir nútímalegar skrifstofur og heilbrigðisrými sem svara kalli nútímans. Fasteignasafn félagsins telur um 42 þúsund fermetra þar af 4 þúsund fermetrar í byggingu. Um 90% af fermetrum félagsins eru byggðir eftir 2018. Félagið leitar eftir farsælu langtíma viðskiptasambandi við sína leigjendur og stendur félagið fyrir góða þjónustu, gæði og áreiðanleika í viðskiptum.

Tónahvarf 5 - 0102

203 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2023TegundAtvinnuhúsnæðiStærð307,6 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23293991
Skráð hjá
Reykjastræti fasteignafélag
HeimilisfangLágmúli 7, 108Sími571-4990

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑