1 af 35
Um eignina
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Sjávarborg 1A, Skagafirði ásamt tilheyrandi eignarlóð.
Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum á neðri hæð í tvíbýlishúsi ásamt kjallara og bílskúr á einstökum stað.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er fasteignin alls 326,9 fm., þ.e. íbúðin 267,9 fm. og bílskúr 59 fm.
Fasteignin býður upp á mikla möguleika.
Íbúðarhúsið var steypt árið 1930, þá tvær hæðir og kjallari undir hálfu húsinu. Árið 1954 var efsta hæðin byggð ofan á húsið.
Staðsetning hússins er einstök en það stendur á klettaborg rétt sunnan við Sauðárkrók.
Stórkostlegt útsýni er frá íbúðinni en víðsýnt er til allra átta.
Efri hæðin skiptist í fjögur herbergi, rúmgóða stofu, baðherbergi, forstofu og gang.
Neðri hæðin skiptist í tvö herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, tvær geymslur og breiðan gang.
Þrír inngangar eru í húsið. Inngangur er að vestan um steyptar töppur og komið í forstofu á efri hæð.
Tveir inngangar eru að austan þar sem gengið er inn á neðri hæð, annar í forstofu og hinn í þvottahús.
Stigi er á milli hæða.
Botn- og milliplötur eru steyptar.
Húsið hefur verið einangrað og klætt að utan.
Þakjárn var endurnýjað árið 2002, þakjárn er með innbrenndum lit.
Bílskúr er byggður úr timbri árið 1952 og er á steinsteyptum grunni.
Möguleiki er að kaupa meira land með eigninni sem væri þá öll klettaborgin og austan og sunnan við hana.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

Sjávarborg n.h.
551 Sauðárkrókur (dreifbýli)
Tilboð
Hæð6 svefn · 2 bað
Byggingarár1930TegundHæðStærð594,8 m²Herbergi8InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF25198941Fasteignamat128.200.000 kr.Brunabótamat238.650.000 kr.
Allar 35 myndir
Upp ↑