Um eignina
Falleg og vel búin íbúð á efstu hæð í Villamartin Garden. Sjávarútsýni frá svölum og þaksvölum.
Íbúðin er með tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Eldhús og stofa í opnu og björtu rými. Þvottahús inn af eldhúsi.
Suður svalir og stórar þaksvalir þar sem hægt er að sóla sig allan daginn.
Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og geymsla.
Íbúðin er eins og ný og búið að setja upp mikið að aukahlutum.
- Sía á öllu vatni í íbúðinni, því hægt að drekka gott vatn úr öllum krönum.
- Ný vifta fyrir ofan eldavél
- Skápur á svölum
- Góð geymsla á þaksvölum
- Sturtuklefi á þaksvölum
- Hliðargler á svölum
- Sólhlíf á svölum
- Pergola á þaksvölum
- Gler á gangi við útihurð
Húsgögn fylgja að hluta.
Þrjár sundlaugar í sameign, þar af ein yfirbyggð og upphituð. Leiksvæði fyrir börn.
Glæsileg eign sem vert er að skoða og frábær útleigu eign.
Sjón er sögu ríkari!
Skoða fleiri myndir og eignir hér.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.
Costa Blanca Penthouse
Allar 10 myndir
Upp ↑








