fasteignasölur.is
Smáratorg 3
1 af 12

Um eignina

Croisette Real Estate Partner kynnir TIL LEIGU - Smáratorg 3 .

Smáratorg 3, Turninn í Kópavogi, er hæsta bygging landsins og útsýni stórfenglegt eftir því. Fimmtánda og átjánda hæðin eru lausar til leigu en hæðirnar eru hvor um sig í kringum 820 fm. Flott útsýni til allra átta, sjón er sögu ríkari. Skrifstofuhæðirnar eru báðar bæði með lokuðum skrifstofum/ fundarherbergjum og stórum opnum rýmum. Auk þeirra er hálf þrettánda hæðin laus til leigu, skrifstofurýmið er í kringum 400 fm með flottu útsýni til norðvesturs. Á tólftu hæð eru tvö skrifstofurými laus til leigu, annars vegar í kringum 230 fm sem vísar til norðausturs og hins vegar í kringum 170 fm skrifstofurými sem vísar til suðvesturs.
Turninn býður upp á marga góða kosti bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga en bygging hefur um langt árabil verið afar vinsæl hjá félaginu. Húsvörður er í byggingunni. Urmull bílastæða sem og rafbílastæði bæði í bílastæðakjallara og á stórum bílastæðaplönum úti allt í kringum bygginguna.  Þá er hjólageymsla í byggingunni ásamt sameiginlegu sturtu- og búningaaðstöðu.


Nánari upplýsingar veitir:
Styrmir Karlsson, lfs og framkvæmdastjóri í síma 899 9090 eða styrmir@croisette.is .



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Croisette real estare partner bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur. 
 

Smáratorg 3

201 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1998TegundAtvinnuhúsnæðiStærð820 m²Herbergi2FasteignanúmerF22495451
Skráð hjá
Croisette Iceland ehf
HeimilisfangKirkjuteigur 21, 105 RvíkSími569-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑