fasteignasölur.is
Aðalstræti 9
1 af 7

Um eignina

Landmark fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali kynna: Vel staðsett og vandlega innréttað 134,0 m2 atvinnuhúsnæði í götuhæð að Aðalstræti 9 í Reykjavík. Veitingarekstur og bar er starfandi í húsnæðinu sem snýr út á hinn sögufræga Fógetagarð. Húsnæðið hefur verið innréttað með vönduðum hætti og samanstendur af hlýlegum flísum, panil og timbri, hlöðnum múrveggjum og fallegri lýsingu. Flísar eru á gólfi í veitingasal, stórt barborð og hillur með fallri innfelldri lýsingu. Stórir gólfsíðir gluggar. Innaf veitingasal eru þrjú salerni, flísalögð með upphengdu salerni og vaski, þarf af er eitt salernið fyrir fatlaða. Innaf veitingasal er geymsla og starfsmannaðstaða með salerni innaf. Sér geymsla er í kjallara. Yfirtaka á leigusamningi. 

Fasteignamat 2026: 109.850.000 kr. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali, s: 823 2600, julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali s: 823 2800, monika@landmark.is

--------------------------------------------------------------------------------------

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Aðalstræti 9

101 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði3 bað
Byggingarár1970TegundAtvinnuhúsnæðiStærð0 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22963921Fasteignamat103.600.000 kr.Brunabótamat116.250.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 7 myndir

Upp ↑