fasteignasölur.is
Ránargata 8a
1 af 15

Um eignina

Falleg húseign í hjarta miðbæjarins með fjórum íbúðum

Til sölu er húseignin Ránargata 8a (F200-1693)101 Reykjavík. Um er að ræða einbýlishús á þremur hæðum, auk kjallara þar sem er ný íbúð með fullri gluggastærð frá lofti til gólfs. Húsið er steinsteypt með steyptum milliplötum og afar vandað frá upphafi.

Í húsinu eru fjórar íbúðir. Húsinu hefur verið vel við haldið og ekkert til sparað. Nýlegt álþak er á húsinu og þrjár af fjórum íbúðum eru nýjar viðbyggingar. Lóðin er eignarlóð og afar vel nýtt undir bygginguna.

Aukin lofthæð er í aðalbyggingu. Efsta hæð að hluta undir súð sem telur ekki með í fermetrafjölda.

Lýsing eignar:

Fyrsta hæð:

Eldhús og stofa/borðstofa. Tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Önnur hæð:

Fjögur svefnherbergi, tvö þeirra með litlu sér baðherbergi. Eitt sameiginlegt baðherbergi og vaskur á gangi.

Þriðja hæð:

Tvær risíbúðir með sér svefnherbergi, alrými og baðherbergi.

Kjallari:

Studioíbúð með gólfsíðum gluggum, þvottaherbergi með gólfsíðum glugga og dæluhús undir tröppum.

Góðir tekjumöguleikar ef óskað er að nýta eignina til útleigu.

Húsið er vel staðsett í miðbæ Reykjavíkur, í sérlega rólegri götu þar sem stutt er í menningu, verslanir og þjónustu miðbæjarins.

Húsið er byggt 1928, viðbyggingar eru gerðar 2004 og 2013. Stærð: 263,8 m2.

Fasteignamat: 2024: 152.350.000 2025: 157.600.000

Brunabótamat: 2024: 131.500.000 2025: 139.900.000

Arkitektar: Luigi Bartolozzi, Haukur Viktorson.

Húsinu er vel við haldið, málað reglulega að innan og utan, nýtt álþak, lagnir og rafmagn endurnýjað.

Slóð hja Bygginafulltrúa á teikningar, sjá „Aðaluppdrættir“ og „Séruppdrættir“:

https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5004-S%C3%A9ruppdr%C3%A6ttir/?q=%22R%C3%A1nargata%208a%22

 

Ránargata 8a

101 Reykjavík
Tilboð
Einbýlishús8 svefn · 8 bað
Byggingarár1928TegundEinbýlishúsStærð263,8 m²Herbergi11FasteignanúmerF0Fasteignamat152.350.000 kr.Brunabótamat131.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRánargata 8a, 101Sími897-1864

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑