fasteignasölur.is
Tryggvagata 4-6
1 af 12

Um eignina

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN KYNNIR TIL SÖLU BJARTA OG VEL SKIPULAGÐA STÚDÍÓ ÍBÚÐ MEÐ SUÐURSVÖLUM Í HAMARSHÚSINU VIÐ TRYGGVAGÖTU Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR. ÍBÚÐIN ER Á ÞRIÐJU HÆÐ OG ER SKRÁÐ 55,8 FM AÐ STÆRÐ.

Um er að ræða rúmgóða, bjarta og fallega stúdíó íbúð með suðursvölum ásamt geymslu í sameign. Íbúðin er vel staðsett á vinsælum stað í miðborginni í góðu fimm hæða fjölbýlishúsi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, menningarlíf og fjölmarga veitingastaði. Fallegt útsýni yfir höfnina og út á sjó er úr íbúðinni. 

Bókið einkaskoðun: Unnur, sími: 8660507 eða unnur@gardatorg.is
 
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með parketi á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi. Ljós eldhúsinnrétting og gengið er út á suðursvalir úr stofu.
Svefnherbergi /svefnkrókur með ljósum góðum fataskápum og parketi á gólfi. Mjög fallegt útsýni í norðurátt.
Flísalagt baðherbergi með ljósri innréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvotttavél.
Lyfta er í húsinu og sérgeymsla í sameign.

***ATH ÍBÚÐIN ER Í ÚTLEIGU FRAM Í JÚLÍ 2025***
***ATH seljandi hefur ekki búið í eigninni og mælt er með að kaupendur kynni sér vel ástand hennar.

Nánari upplýsingar veita:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s:8660507  unnur@gardatorg.is
Haraldur Björnsson, löggiltur fasteignasali, s:7878727  haraldur@gardatorg.is


Vegna mikillar sölu vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Bjóðum upp á frítt verðmat á eignum. Hafið samband ef þið eruð í söluhugleiðingum.

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN ER STAÐSETT Á LYNGÁSI 11 Í GARÐABÆ.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900kr.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garðatorg eignamiðlun
54.500.000 kr.977 þ./m²
+2,8% á 2 árum
10. mars 2025Þinglýstur kaupsamningur
53.000.000 kr.950 þ./m²
+176,0% á 12 árum
9. nóvember 2012Fyrsta sala
19.200.000 kr.344 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tryggvagata 4-6

101 Reykjavík
54.500.000 kr.977 þ./m²
Fjölbýlishús1 bað
Byggingarár1942TegundFjölbýlishúsStærð55,8 m²Herbergi1InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20004968Fasteignamat50.700.000 kr.Brunabótamat24.600.000 kr.
Skráð hjá
Garðatorg eignamiðlun
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími545-0800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑