fasteignasölur.is
Spánn, Mar Menor Beach Villa 4
1 af 51

Um eignina

Mar Menor Beach Villa 7 “Beach Villa” í Los Alcazares, beint útgengi á ströndina frá garðinum. 

Ekki oft sem svona lagað er byggt í dag. Parhús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, góðri stofu og tvær verandir sem bjóða upp á 180° sjávarútsýni. Fyrir framan húsin er garður með einkasundlaug og beint útgengi á ströndina. Hverfið er lokað með 24/7 öryggisgæslu.

Þetta er einstakt tækifæri til að eignast nýja strandvillu í nútímalegum stíl í göngufæri frá öllum þægindum.

Kjarninn samanstendur af átta parhúsum, hvert með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum, og einu einbýlishúsi á stærri lóð með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum.

Allar villurnar státa af nokkrum veröndum, einkasundlaugum og nuddpotti á þaki og klárt fyrir útieldhús.

Hver villa er einnig með bílskúr þar sem Gert er ráð fyrir hleðslu á rafbíl. Það er bein aðgangur að ströndinni frá garðinum frá öllum húsum.

 

Öll húsin koma með meðal annars:

- Hita og kælitækjum (Mitsubishi eða Daikin)

- Fullbúið eldhús með öllum tækjum

– Gluggakarmar úr áli frá Cortizo, með rafdrifnum sólarhlífum á gluggum

– Gólfefni að innan og utan koma frá Porcelanosa.

 

Verð er frá 945.000 – 1.395.000 €

Íslenskt verð miðast við gengið 152 kr ísl/€

Fjögur hús af níu þegar seld

Spánn, Mar Menor Beach Villa 4

1000 Útlönd - Annað
144.000.000 kr.692 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 3 bað
Byggingarár2024TegundRað-/parhúsStærð208 m²Herbergi4InngangurFleiri inngangarBílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangUrbanizacion La Peraleja Golf, Villa 2.2, 30590 Sucina, MurciaSími+34 620 136 657

Allar 51 myndir

Upp ↑