1 af 19
Um eignina
Tröð og Leigulistinn s. 511-2900 kynna nýtt skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði til leigu og afhendingar strax: Um er að ræða 1.637 m² nýtt iðnaðarhúsnæði á 2 hæðum með tæplega 200m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð og um 1.400m² (ca. 40 x35m) vinnusali á jarðhæð. Vinnusalurinn er með 2 aðkeyrsludokkum, auk 3 innkeyrsludyra, sem eru allar um 4m að hæð. Lofthæðin í vinnusalnum er rúmir 8 metrar, en hann er hitaður upp með hitablásurum, útbúinn sprinklerkerfi og er með góðri lýsingu. Innaf vinnusalnum er snyrting og starfsmannaaðstaða með sturtu. Skrifstofuhlutinn á 2. hæð skiptist í opinn vinnusal með parketi á gólfum og með aðgengi út á stórar svalir. Auk er þar að finna eldhús-og kaffiaðstöðu, ásamt snyrtingu. Lyfta er upp á 2. hæðina. Lóðin er frágenin með malbikuðu bílaplani allann hringinn. Áhugasamir hafið samband við sölumenn okkar í s. 511-2900 og pantið skoðun.
trod.is .............................. slóðin að réttu eigninni.
trod.is .............................. slóðin að réttu eigninni.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Tröð fasteignasala
Tilboð
25. júlí 2024Fyrsta sala
612.690.000 kr.374 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Borgahella 31
221 Hafnarfjörður
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2024TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1637,1 m²FasteignanúmerF23300131Fasteignamat367.750.000 kr.Brunabótamat523.450.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 19 myndir
Upp ↑

















