fasteignasölur.is
Austurstræti 18
1 af 8

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna TIL LEIGU: Um er að ræða virkilega bjart og fallegt 100 fm skrifstofuhúsnæði með hlutdeild í sameign á 5. hæð í þessu virta húsi við Austurstræti í Reykjavík. Í húsinu er lyfta. Um vsk húsnæði er að ræða. Leigutaki greiðir sjálfur kostnað vegna öryggiskerfis (valfrjálst) en kerfið er til staðar. 

Nánari lýsing eignar: Húsnæðið skiptist í opið rými sem snýr að Austurstræti og yfir í bakport, snyrtingu og eldhúsaðstöðu með skápum og innbyggðum ísskáp. Ástand húsnæðisins er mjög gott en það er nýlega málað að innan, gegnheilt parket sem er nýpússað og góð loftlýsing. Loftræstikerfi, opnanlegir gluggar og niðurdraganleg sólargluggatjöld.

Leitað er að tryggum leigutaka sem hefur hug á langtímaleigu. 

VIRKILEGA FALLEGT HÚSNÆÐI Í HJARTA MIÐBÆJARINS SEM HENTAR FYRIR ÝMSAN REKSTUR

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Austurstræti 18

101 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár1964TegundAtvinnuhúsnæðiStærð100 m²InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20026601
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑