fasteignasölur.is
SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
1 af 36

Um eignina

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS MEÐ BÍLAKJALLARA. GÓÐ STAÐSETNING*

Falleg einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílakjallara  á frábærum stað í Pilar de la Horadada, snyrtilegum  bæ, ca. klst. akstur í suður frá Alicante. Sér garður og einkasundlaug. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi + gestasnyrting, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Stæði í bílakjallara ásamt sér geymslu. 
Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Lo Romero, Roda golf, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Stutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Stutt á fallega strönd.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Skipulag:

Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta.  Svefnherbergi með sér baðherbergi. Gestasnyrting. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi og útgengi út á góðar svalir. Þakverönd. Kjallari þar sem hægt er að vera með bílageymslu, tómstundarými eða annað.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
Verð frá 485.000 Evrum (ISK 70.300.000) + 10% skattur og ca. 3%  kostn. við kaupin

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: einkasundlaug, þakverönd, sér garður, air con, ný eign, bílskúr, geymsla
Svæði: Costa Blanca, Pilar de la Horadada,
 

SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada

1000 Útlönd - Annað
70.300.000 kr.386 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð182 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF102260824
Skráð hjá
HeimilisfangHólmgarður 34, 108 Reykjavík, 108Sími893-2495

Allar 36 myndir

Upp ↑