fasteignasölur.is
Ketilsbraut 18
1 af 13

Um eignina

Lögeign kynnir eignina Ketilsbraut 18, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 02-06.

um er að ræða fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum, eignin er samtals 135,2 m2 og skiptist þannig að íbúð er skráð 89,6 m2 en anddyri-þvottahús er skráð 45,6 m2. Gengið er inn í íbúðina frá Ketilsbraut og er þar komið inn í þvottahús. Við þvottahús er herbergi sem nú er notað sem skrifstofa en auðvelt væri að breyta í herbergi. Úr þvottahúsinu er svo gengið inn í hol þar sem er m.a. annars aðalinngangur inngangur eignarinnar. Við holið er einnig salernisherbergi og annað svefnherbergi. Úr holinu er svo stigi upp á efri hæð.
Efri hæðin samanstendur af tveimur herbergjum, stofu, holi, eldhúsi, búri og baðherbergi. Stofan er rúmgóð með stórum gluggum sem snúa að Ketilsbraut. Búið er að útbúa herbergi við enda stofunar og nálægt stiganum. Úr því herbergi er hægt að ganga út á svalir. Eldhús er með hvítri innréttingu og grárri borðplötu, ágætis bekkjar- og skápapláss er í innréttingunni. Við eldhús er búr og lítil geymsla. Svefnherbergi og baðherbergi er á gang frá eldhúsinu, þar er stærsta herbergið í eigninni og er það með fataskáp. Baðherbergi er með sturtu og hvítri skápainnréttingu með spegli sem er í stíl við innréttingu í eldhúsi.

Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist fasteignina í skuldaskilum og hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni.  Seljandi þekkir ekki eignina umfram það  sem fram kemur í opinberum gögnum.  Því leggur seljandi ríka áherslu á það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árvekni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi/fasteignasali kaupanda allan nauðsynlegan aðgang til þess.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Ketilsbraut 18

640 Húsavík
35.000.000 kr.259 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1952TegundFjölbýlishúsStærð135,2 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21530771Fasteignamat31.800.000 kr.Brunabótamat50.550.000 kr.
Skráð hjá
Lögeign
HeimilisfangGarðarsbraut 26, 640Sími865-7430

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑