fasteignasölur.is
Ný Penthouse á besta stað
1 af 17

Um eignina

Á Sumareignir.is
finnur þú mesta úrval landsins af fasteignum
til sölu á Costa blanca. 

Yfir 2.000  eignir eru til sölu 
inná Sumareignir.is

Um  þessa eign:
 

Hér er alveg ný þakíbúð sem var að koma aftur á sölu.
- Frábær staðsetning - tilbúin til innflutnings.
Íbúð 71 fm - Svalir 18,6 fm - Þaksvalir 71 fm 


Stór og rúmgóð íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Eldhús með hvítri innréttingu með aðgengi í lokað þvottahús og stofu/borðstofu alrými.
Útgangur frá stofu út á stórar svalir með útsýni yfir sundlaugagarðinn. Frá svölum er stigi upp á þaksvalir.
Heimilistæki og loftræsting heitt/kalt fylgir með.
Þessi íbúð snýr í austur. Þar er morgunsól á svölunum og glampandi sól á þaksvölunum allan daginn og fram á kvöld.
Það fylgir bílastæði í kjalla og góð geymsla.

Lyfta frá bílakjalla og upp á allar hæðir, hjólastóla aðgengi.

Flottur sundlauga garður.
Kjarninn er vel staðsettur, í göngufæri við marga veitingastaði, verslun og Laugardagsmarkað.
EKKI MISSA AF ÞESSU FRÁBÆRA TÆKIFÆRI - AÐEINS ÞESSI EINA ÍBÚÐ

Skoða allt um íbúðina hér.
 

Við semjum alltaf um besta verðið fyrir þig.
Í flestum tilfellum fáum við eitthvað aukalega fyrir okkar viðskiptavini. Golf, húsgögn, aircondition eða eitthvað annað. 

SKOÐUNARFERÐIR:
Við skipuleggjum sérsniðanar skoðunarferðir með hverjum og einum.

Lána möguleikar:
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni eða allt að 70% kaupverðs.

Kaupferlið:
Sjá má allt um kaupferlið á Spáni á hér á heimasíðunni okkar: Sumareignir.is
Smella hér.

Kostnaður:
Kostnaður við kaupin: Ofan á auglýst verð kemur 10% spænskur söluskattur. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3 til 4 % kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13 til 14%.

Mesta úrval landsins á eignum til sölu á Costa blanca - Yfir 1.000 eignir. 
Skoða fleiri eignir hér

Ný Penthouse á besta stað

1000 Útlönd - Annað
42.900.000 kr.260 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð165 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2599854
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðarsmára 19, 201 KopavogiSími616-8880

Allar 17 myndir

Upp ↑