fasteignasölur.is
Kambastígur 2A
1 af 48

Um eignina

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignin við Kambastíg 2A, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og leigulóðarréttindum.
Um er að ræða tvær íbúðir á miðhæð og í kjallara hússins sem er steypt og byggt árið 1927.
Birt heildarstærð séreignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti er 137,7 fm. Leigulóð hússins alls er 434 fm. 


Íbúðirnar eru báðar í útleigu.

Íbúð miðhæðar, birt stærð íbúðarinnar er 66,9 fm.:
Íbúðin skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Inngangur að austan um steinsteyptar tröppur. Komið inn í parketlagða forstofu/gang. Við gang eru skápar. 
Eldhús með dökkri innréttingu og dökkri borðplötu. Innrétting var endurnýjuð í byrjun árs 2021. Siemens eldavél. Aðstaða fyrir þvottavél í eldhúsi. 
Tvö parketlögð herbergi auk stofu.
Baðherbergi var endurnýjað 2022 og þá sett ný innrétting, sturta og vínilparket á gólf.
Vatnslagnir í eldhúsi og baðherbergi hafa verið endurnýjaðar. 
Nýtt parket var lagt á íbúðina í janúar 2022.

Íbúð í kjallara er 72,4 fm. og ÓSAMÞYKKT.
Kjallari skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhúskrók og baðherbergi.
Íbúðin var öll gerð upp á árunum 2020-2022.
Gólf eru öll flísalögð og með gólfhita.
Gengið er í íbúðina niður hlaðnar tröppur á austurhlið hússins.
Stofa er miðsvæðis í íbúðinni og þar við rúmgott herbergi.
Í eldhúsi er viðarinnrétting með dökkri borðplötu, Beko eldavél og Electolux vifta.
Við eldhús er annað herbergi.
Á baðherbergi er hvít innrétting, hvít tæki, handklæðaofn, stór spegill og sturta. Þvottavélatengi á baðherbergi.

Að utan er húsið í ágætu ástandi.
Þakjárn og þakrennur hafa verið endurnýjaðar en ekki liggur fyrir hvenær.
Gluggar virðast í lagi en gler er orðið gamalt. Húsið er nýmálað að utan.
Þakvirki er báruklætt valmaþak.
Frárennslislagnir hússins hafa verið endurnýjaðar út í brunn og settur nýr brunnur við lóðarmörk.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Sauðárkróks
49.500.000 kr.359 þ./m²
+125,0% á 4 árum
2. febrúar 2023Fyrsta sala
22.000.000 kr.160 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kambastígur 2A

550 Sauðárkrókur
49.500.000 kr.359 þ./m²
Fjölbýlishús
Byggingarár1927TegundFjölbýlishúsStærð137,7 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21319171Fasteignamat45.750.000 kr.Brunabótamat52.700.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Sauðárkróks
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑