Um eignina
Eignaver 460-6060
Til sölu helmings hlutur í jörðinni Árhvammi í Laxárdal, Suður- þingeyjarsýslu, 641 Húsavík, F216-3537.
Um er að ræða 50% af landareign Árhvamms í Laxárdal ásamt hlunnindum sem eignarhlutanum fylgir svo sem veiðirétti í Laxá í Laxárdal og Kringluvatni. Jörðin er í óskiptri sameign.
Jörðin Árhvammur var stofnuð árið 1939 á hálfu landi jarðarinnar Kasthvamms. Beitiland er enn í dag óskipt með Kasthvammsjörðinni en ræktað land er skipt og er það skráð 10,5 hektarar. Heildarstærð hins óskipta heiðarlands er talið vera um 25 ferkílómetrar, einnig eiga jarðirnar sjö hólma í Laxá (heimild, Byggðir og Bú 1985). Jörðin á veiðirétt í hinni margrómuðu Laxá í Laxárdal, þar er góð silungsveiði en veiðifélag er um stangveðina á svæðinu, Veiðifélag Laxár og Krákár.
Einnig á Árhvammur helmings veðirétt í Kringluvatni sem stendur ofan við bæina, Kasthvamm og Árhvamm, en þar er nokkur silungsveiði, mest í net.
Laxárdalur er þekktur fyrir einstaka náttúrufegurð og fallegt umhverfi og er hér tækifæri til að eignast land með eignarhluta í einni fallegustu silungveðiá landsins.
Engin mannvirki fylgja þeim eignarhluta sem um ræðir.
Nánari upplýsingar veitir Bergþóra Höskuldsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 8450671, tölvupóstur begga@eignaver.is.

Árhvammur Laxárdal
641 Húsavík (dreifbýli)
Tilboð
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð105000 m²FasteignanúmerF21635371Fasteignamat7.199.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál