fasteignasölur.is
Langanes 37
1 af 9

Um eignina

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA kynnir í sölu:
Langanes 37.
Um er að ræða 10.415 m² leigulóð í Rangárþingi eystra. Byggingarmagn er allt að 300 fermetrar, í allt að fjórum húsum t.d frístundahús, gestahús, geymslu og gróðurhús.
Kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk. Ekki er hitaveita á svæðinu.
Mjög falleg lóð með stórkostlegri fjallasýn, útsýni til Heklu, Þríhyrnings, Tindfjalla og Eyjafjallajökuls.
Lóðin er í nágrenni við Eystri-Rangá. 5 mínútna akstur á Hvolsvöll. 5 mínútna akstur á Golfvöllinn á Strönd og á góðan veitingastað á Hótel Rangá.
Búið er að planta töluverðu magni af trjám sem eru þó komin mislangt á veg. 
Lóðaleiga er 1% af fasteignamati.
Kvöð er um að kaupandi verði kominn með byggingar og hafinn með framkvæmdir innan árs frá kaupum.

Skemmtileg lóð á flottum stað með fallegu útsýni í Rangárþingi eystra, lóðin er í u.þ.b 5 km fjarlægð frá Hvolsvelli.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800

Langanes 37

861 Hvolsvöllur (dreifbýli)
TegundJörð/LóðStærð0 m²
3.900.000 kr.
FasteignanúmerF2341688Fasteignamat4.210.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 6, 800 SelfossSími482-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑