fasteignasölur.is
Grensásvegur 1C
1 af 2

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til leigu 218,9 m² skrifstofu-/ verslunarhúsnæði á jarðhæð auk 173 m² rýmis í kjallara í nýju húsi við Grensásveg 1C. Laust samkvæmt nánara samkomulagi.

Húsnæðið skiptist upp í opið verslunar- og þjónusturými sem er tilbúið til innréttingar. Lofthæð er aukin eða um 3,8 m. Gert er ráð fyrir að gólf verði flotað, ofnar og allt rafmagn komið en lýsing og aðrar innréttingar eru leigjandans. Í kjallara er 173 m² rými og er því heildarflatarmál hins leigða samtals 391,9 m². Næg bílastæði eru í bílakjallara hússins. VSK leggst við leigufjárhæðina. Trygging sem svarar 6 mánaða húsaleigu með virðisaukaskatti skal lögð fram fyrir afhendingu húsnæðisins.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086 hmk@jofur.is
 


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Grensásvegur 1C

108 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð391,9 m²FasteignanúmerF568739
Skráð hjá
Jöfur atvinnuhúsnæði
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 2 myndir

Upp ↑