fasteignasölur.is
Ketilsstaðir
1 af 18

Um eignina

Stórglæsilegt fullbúið sumarhús á einni hæð á einstökum útsýnisstað. Víðsýnt er til flestra átta og afar friðsælt við Heklurætur.
Stutt í sundlaugina á Laugalandi, golfvöllinn á Hellu og góður veitingastaður er á Landhóteli, svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er staður og hús fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig með villta og fjölbreytta náttúru allt í kring, ásamt mikilli fjallasýn. Sumarhúsisð er á 6.149 m2 eignalóð. 


Húsið er skráð 125,1 fm og svo er gestahús eða tómstundahús um 13,2 fm að auki. Húsið er að mestu álklætt, áltré gluggar eru í húsinu frá Byko. Í stofu er rennihurð á verönd. Hitaveita og gólfhiti er í öllu húsinu. Vandað rafkerfi frá Free@ home. Um 170 fm verönd er við húsið. Vandaðar innréttingar eru frá Fríform.

Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu. Gesta snyrting er flísalögð. Eldhús, stofa eru í stóru alrýmu, upptekin loft, falleg eyja með kvartssteini og vönduðum tækjum.  Rennihurð úr stofu á stóra verönd. Á herbergjagangi eru 3 herbergi. Baðherbergi er flísalagt, sturta innrétting, hurð er af baði út á verönd þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Þvottahús er flísalgt, innrétting. Við húsið er 13,2 fm hús, parket er á gólfi. Tæki í eldhúsi og þvottahúsi fylgja.

Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til þess að eignast glæsilegt hús á frábærum útsýnisstað. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, as@hofdi.is, Gsm 8953000.-  Runólfur Gunnlaugsson, runolfur@hofdi.is, Gsm 892 7798.-

 

Ketilsstaðir

851 Hella (dreifbýli)
93.900.000 kr.68 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2022TegundSumarhúsStærð1383 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23429546Fasteignamat50.700.000 kr.Brunabótamat69.550.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑