fasteignasölur.is
Grensásvegur 1
1 af 18

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til leigu um 455,2 m² ný skrifstofuhæð að meðtöldum öðrum stoðrýmum, s.s. geymslu og hjólageymslu í kjallara í nýbyggðu og glæsilegu húsnæði við Grensásveg 1 gegnt Álfheimum/ Glæsibæ. Áætlað er að húsnæðið verði tilbúið til afhendingar í september - október 2026.

Nánari lýsing: Á hverri hæð frá 2. - 6. hæð er gert ráð fyrir opnum vinnurýmum, lokuðum skrifstofuherbergjum og fundarherbergjum, kaffistofum/ eldhúsum með borðsal, snyrtingum og öðrum rýmum að ósk væntanlegs leigjanda. Við hönnun á húsnæðinu var lögð mikil áhersla á að skapa góða hljóðvist, loftgæði og vandað efnisval á væntanlegum innréttingu, gólfefnum, loftaefni og lýsingu.
Aðgengi er að 183 bílastæðum í samnýttri bílageymslu á þremur hæðum neðanjarðar og veður fyrirkomulagið með þau leigustæði til langtíma og einnig verða skammtímabílastæði í boði innan dagsins fyrir viðskiptavini og gesti. Áhersla verður lögð á skilvirkni og einfaldleika varðandi fyrirkomulag með greiðslur fyrir bílastæðin. Tvær lyftur sem eru hlið við hlið munu þjóna skrifstofuturninum eingöngu.
Stór hjólageymsla verður á efstu hæð kjallara hússins fyrir skrifstofu- og önnur atvinnurými og íbúðir sem eru í húsinu. Komnar eru upp rafhleðslustöðvar í bílageymslu ásamt því að bjóða leigjendum atvinnuhúsnæðis upp á aðgang að deilibílum til þess að fá sem besta samnýtingu á bílastæðum/ verðmætum hússins. Þessi glæsilega skrifstofubygging er vel staðsett í beinu framhaldi af öðrum byggingum við Suðurlandsbrautina og setur nú þegar sterkan svip á götumyndina.

VSK leggst við leigufjárhæðina.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson, löggiltur fasteignasali í síma 824 6703 tölvupóstur olafur@jofur.is


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Grensásvegur 1

108 Reykjavík · Austurbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð455,2 m²
Tilboð
FasteignanúmerF5139521
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑