Um eignina
Vel staðsett og vandlega innréttað 125,5 m2 atvinnuhúsnæði í götuhæð að Aðalstræti 9 í Reykjavík. Húsnæðið fæst afhent fljótlega.
Verslunarrýmið er veglegt ásýndar með gólfsíðum gluggum, gegnheilu parketi með fiskibeinamynstri, vönduðum dökkum innréttingum og stóru afgreiðsluborði fyrir miðju verslunar. Mikið hefur verið lagt í heildarhönnun og lýsingu rýmisins. Gler-stálhurð er beggja vegna verslunarrýmisins sem skilur að annars vegar snyrtistofu og hins vegar starfsmannaaðstöðu. Fyrir framan snyrtistofu er setustofa. Snyrtistofa er vandlega innréttuð með tveimur aðgerðaherbergjum, þar er baðherbergi með sturtu og sér geymsla. Starfsmannaaðstaða er með setukrók og lítilli innréttingu með vaski, tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Salerni er innaf með flísum á gólfi. Úr starfsmannaaðstöðu er innangengt í sameign með inngangi sem snýr að fógetagarði.
Húsnæðið getur hentað fyrir ýmiskonar rekstur.
Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar
Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat
Aðalstræti 9
Staðsetning
Allar 16 myndir
Upp ↑














