fasteignasölur.is
Hólabraut 31
1 af 49

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannson, lögg. fasteignasali (s: 823-2600 / julius@landmark.is) kynna:

Gott og talsvert endurnýjað 221,2 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk rishæðar við Hólabraut 31 á Skagaströnd. Húsið er skráð á tvö fasteignanúmer en notkunin á húsinu í dag er sem ein heild. Talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu. Á aðalhæð og kjallara hefur innra byrði verið mikið endurnýjað ásamt gólfefnum. Frárennsli hefur verið endurnýjað að lóðarmörkum og nýr brunnur settur. Þá hefur verið byggður góður sólpallur í bakgarði með skjólgirðingum og stórt bílaplan steypt með stæði fyrir fjóra bíla. Sjá nánar lista yfir endurbætur neðar í lýsingu. Fimm góð svefnherbergi eru í eigninni í dag og er hægt að bæta við þremur í viðbót með endurbótum á rishæð. Tvö baðherbergi. Eignin stendur innst í botlanga fremst í bænum með fallegu útsýni. 

Sækja söluyfirlit strax

Aðalhæð skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Aðainngangur íbúðarhúss. 
Forstofa er með flísum á gólfi.
Hol er með harðparketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu, bakarofni í vinnuhæð, helluborði, tengi fyrir ísskáp og uppþvottavél, harðparket á gólfi. 
Borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi 2 er rúmgott. harðparket á gólfi. 
Baðherbergi 1 er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, handlaug, hillum, sturtu og handklæðaofni á vegg. 
Tepplagaður stigi niður af aðahæð í kjallara.

Kjallarahæð skiptist í gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og litla geymslu undir stiga. útgengi á stóra verönd. 
Gangur og hol er með flísum á gólfi. Inngangur er í kjallara. 
Svefnherbergi 3 er mjög rúmgott, harðparket á gólfi. 
Svenherbergi 4 er mjög rúmgott, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 5 er mjög rúmgott, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi 2 er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðinnréttingu, spegli yfir með innbyggðri lýsingu, hornbaðkari, stórri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Gólfhiti.  Af baði er útgengi á verönd og baklóð. 
Þvottahús er mjög rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og vinnuborði, flísar á gólfi. 
Geymsla er fremst og síðan er gengið inní þvottahúsið. 

Stigi er úr forstofu aðalhæðar upp á rishæð.
Rishæð skiptist í gang, 3 herbergi eða geymslur. Hæðin er hrá og vantar gólfefni að hluta. Skipt hefur verið um glugga sem snýr í norður. Ljóst er að ýmis tækifæri felast í endubótum á hæðinni. 

Endurbætur á eign:
Búið að skipta um öll gólfefni á mið og neðstu hæð. Nýtt parket á miðhæð áramót 21-22. Ný gólfefni á jarðhæð sumar 2019. 
Vor og sumar 2019 voru útveggir á jarðhæð klæddir og einangraðir að innan. Nýtt rafmagn dregið að miklu leyti í húsinu og bætt við tenglar í töflu. 
Sumar 2019 var nýtt frárennsli sett alla leið út að lóðarmörkum ásamt því að brunnur var settur í lóðina.
Sumar 2020 var settur stór sólpallur að norðan með rafmagni og frárennsli fyrir heitan pott. Lýsing kom á pallinn sumar ‘22.
Búið að skipta um dælu í lagnagrind. 
Sumar ‘22 var bílaplan stækkað og steypt og er um 100 fermetrar, pláss fyrir 4 bíla.
Skipt um gler í föstum fögum á miðhæð sumar ‘21. Þá var einnig skipt um lista og fóðringar og gluggar teknir í gegn, nema einn glugga. Ekkert var gert í risi fyrir utan einn glugga sem hefur verið endurnýjaður. 
Sumar ‘22 kom ný útidyrahurð og ný hurð með aðgengi á pall var sett ásamt nýjum glugga og opnanlegu fagi.
Skipt um innihurðir í kjallara fyrir utan geymsluhurð undir stiga og sett ný útdyr frá baðherbergi út á pall. 
Ljósleiðari í húsinu, settur upp 2019.

Fasteignamat 2026: 43.400.000 kr. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali julius@landmark.is sími 823-2600, í félagi FF
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali monika@landmark.is sími 823-2800, í félagi FF
Láttu okkur selja fyrir þig. Hafðu samband og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Hólabraut 31

545 Skagaströnd
45.900.000 kr.208 þ./m²
Einbýlishús7 svefn · 2 bað
Byggingarár1948TegundEinbýlishúsStærð221,2 m²Herbergi6InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF21389236Fasteignamat38.600.000 kr.Brunabótamat95.500.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 49 myndir

Upp ↑