fasteignasölur.is
Óseyrarbraut 25
1 af 9

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í TIL LEIGU:

Um er að ræða mjög gott 1.500 fm nýtt iðnaðarhúsnæði ásamt skrifstofuhluta (vesturhluti hússins) við Óseyrarbraut 25 í Hafnarfirði. Skv. byggingarlýsingu er húsnæðið áætlað fyrir atvinnustarfssemi, léttan iðnað og bátasmíði. Eignin skiptist í tvo hluta og er annar hlutinn til leigu sem er eins og áður sagði 1.500 fm. Í suðurenda hússins er gert ráð fyrir starfsmannarými, snyrtingum, búningsherbergjum og kaffiaðstöðu á fyrstu hæð og skristofustarfssemi á 2. hæð. Gólfhiti er í húsnæðinu - mjög góð aðkoma og nægt pláss á lóðinni. 

Í opna rýminu er lofthæðin 16 - 18 m. Fjórar innkeyrsludy (4,2 m) og ein 14 m innkeyrsludyr. Frá opna rýminu er innangengt í suðurenda hússins þar sem gert er ráð fyrir skrifstofustarfssemi og starfsmannarými. Í suðurenda hússins er einnig gert ráð fyrir lyftu. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Óseyrarbraut 25

220 Hafnarfjörður
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2023TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1500 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23304931
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑