fasteignasölur.is
Dugguvogur 1 - íbúð 306
1 af 17

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Dugguvog 1, 104 Reykjavík. Um er að ræða 51 íbúð, stærðir frá 62,8 fm - 141,9 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi og loftskiptikerfi innan íbúðar. Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Íbúð merkt 306 - 2ja herbergja 64,3 fm íbúð á þriðju hæð með einu svefnherbergi og rúmgóðum svölum. Rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús með borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara.

Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýtingu á varma. Vönduð innrétting á baðherbergi fyrir þvottavél og þurrkara. Rennihurð út á svalir.


Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu

Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 9,8 fm geymslu.

Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign) 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Dugguvogur 1 - íbúð 306

104 Reykjavík
67.900.000 kr.1.056 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð64,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253278036Fasteignamat26.500.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑