Um eignina
Eignin samanstendur af forstofu, herbergi, stofu og eldhúsi í opnu rými og baðherbergi.
Rishæðin er eitt rými Stór gluggi sem snýr út á Ísafjarðardjúp, gott útsýni þar. Kjallari undir hluta hússins.
Að innanverðu er eignin svo til fokheld
Nýlegar framkvæmdir eigenda:
- Steypa stórt plan og tröppur upp að húsi - Steypa sökkul undir horn sem var skemmt.- Múra grunninn á húsinu.
- Nýtt gler í flestu. Annað gler nýlegt. - 2x Nýjar svalahurðar, 2x hurðar af gangi inn í íbúðir, Ný útidyrahurð.
- Massív grind kringum lóð fyrir grindverk. (Steypt niður) - Stífa gólf uppi og slétta gólf niðri (Rakavarðar plötur)
- Ný einangrun í þaki. - Skolprör fyrir baðherbergi tvö. - Skolprör í garðinum fyrir gestahús.
- Affallsrör fyrir þakrennur. - Bera mold í lóð. - Þak lektað og nýr rakavarnardúkur settur á. - Þakrennur, festingar og rör.
- Gólfhitalagnir í allri neðri hæð.
- Það þarf að útbúa brunn í kjallara eða þétta gólf. Kemur smá vatn upp um kjallaragólfið á háflóði. (Dæla fylgir með)
- Þarf að fara yfir klæðningu á húsi sem og frágang á þaki og undir þríhyrnda glugganum uppi. (Enginn leki, en þarf að gera betur)
- Nýleg rafmagnstafla - Húsið er mjög vel einangrað og heldur hita vel.
- Allar lagnir eru nútímavæddar (Ekkert upprunalegt) - Það er rafmagn í húsinu en það á eftir að leggja fyrir innstungum og ljósum.
- Er töluvert eldra en skráð ártal í Fasteignaskrá - Gert er ráð fyrir að skipta húsinu í tvær einingar. 2 herbergja íbúð og stúdíó íbúð.
Eigendur hafa keypt eftirfarandi hluti sem fylgja með í kaupum eignar:
- Ný salernisskál (Sú sem er í notkun er sprungin)
- 2 x Baðvaskar og innréttingar undir + speglar (Ikea)
- Nýr stór hitakútur sem á að anna heitavatnsþörf beggja íbúða ásamt gestahúsi verði það sett upp (Ekki búið að tengja)
- Veggjapanell og þynnri loftapanell fyrir efri hæðina.
Skráður timburhjallur 18,5 m² að stærð hefur verið rifinn, húsið sjálft er skráð 89,3 m².
Húsið er klætt með bárujárni frá ca 2014 en sér járni á eftir fokskemmdir.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Stekkjargata 31
Staðsetning
Allar 11 myndir
Upp ↑









