fasteignasölur.is
Frakkastígur 8C
Nýtt
1 af 30

Um eignina

Miklaborg kynnir:

***Virkilega björt og glæsileg 4ra herbergja íbúð á 4 hæð í nýlegu fjölbýli í miðbæ Reykjavíkur - hönnuð af Berglindi Berndsen innanhúsarkítekt.
Lýsing er frá LUMEX
Gólfsíðir gluggar með frábæru útsýni á miðborgina, hafið og Esjuna.
Eignin er samtals 130fm, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, geymsla (8,4fm) og stæði í bílakjallara.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.


***Allar nánari upplýsingar veita

Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum. Eldhús er með fallegri innréttingu (voke 3), eldunareyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Eldhúsið er í björtu og opnu rými með stofu og borðstofu. Fallegt útsýni er út á flóann og gólfsíðir gluggar. Svalir út frá stofu. Úr stofu er gengið inn á svefnherbergisgang. Tvö góð barnaherbergi með skápum ásamt baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með góðum skápum. Sér baðherbergi er inn af hjónaherbergi og er það með fallegri innréttingu, sturtu og baðkari. Í kjallara er góð geymsla og stæði í lokaðri bílgeymslu. Snyrtilegur inngarður er í suðurvestur.

GÓLFEFNI: Vandað viðarparket er á öllum gólfum nema baðherbergjum en þar eru flísar.


FALLEG, NÝLEG ÍBÚÐ Á FRÁBÆRUM STAÐ Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR


Allar nánari upplýsingar veita

Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Frakkastígur 8C

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð130 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
149.500.000 kr.1.150 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2004752Fasteignamat115.300.000 kr.Brunabótamat90.390.000 kr.
Skráð hjá
Sæþór ÓlafssonLöggiltur fasteignasali855-5550 · saethor@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑