Um eignina
Fallegt og skemmtilega staðsett einbýlishús á þremur hæðum.
Í húsinu eru tvö herbergi, tvær stofur, baðherbergi, eldhús, borðstofa, forstofa og geymsla. Aðalinngangur er á miðhæð.
Þak á húsinu endurnýjað 2024.
Nánari lýsing:
Kjallari: búið er að fjarlægja innréttingar og gólfefni úr kjallara að mestu.
Sér inngangur á norðurhlið.
Ágætt herbergi. Opið rými þar sem áður var eldhús.
Geymsla/kyndiklefi, ný lagnagrind.
Baðherbergi
Hringstigi milli hæða
Miðhæð: Aðalinngangur er á miðhæð, komið inn í flísalagða forstofu.
Rúmgóð og opin stofa. Inn af stofunni er svo ágæt setustofa með arni, mætti einnig nýta sem svefnherbergi.
Stigi upp á rishæð sem er opið rými, eftir á að klára að einangra og klæða loft eftir að þak var endurnýjað.
Til eru grunnteikningar frá 1986 sem sýna ætlaða viðbót/stækkun á húsinu. Sjá myndir.
Seljandi hefur byrjað framkvæmdir sem þarf að klára, klæða loft á rishæð, leggja drenlagnir ofl.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Hlíðarvegur 2
Staðsetning
Allar 13 myndir
Upp ↑











