fasteignasölur.is
Melbraut 3
1 af 28

Um eignina

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir  Melbraut 3, 250 Garður.
 

Um er að ræða um 258 fm. einbýlishús á tveimur hæðum, Búið er að skipta húsinu upp í tvær um 129 fm. íbúðir.
Eignin skiptist í 9 svefnherbergi, 2 baðherbergi, tvö eldhús, þvottahús, stór lóð og bílaplan.
Eignin er til sölu eða leigu.
Leiguverð fyrir húsið er kr. 700.000 og getur verið leigð í 6 mánuði.
Húsið getur selst með húsgögnum og öðrum búnaði eftir samkomulagi.
Í húsinu er aðstaða fyrir um 16 einstaklinga og selst húsið með húsgögnum og öðrum búnaði.
 
Nánari lýsing:
Efri hæð hússins hefur 4 svefnherbergi, öll rúmgóð með parket á gólfi. Möguleiki á því að bæta við fleiri herbergjum.
Eldhús hefur góða innréttingu með miklu skápaplássi og eldhúskrók.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, innréttingu, salerni og sturtu.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt, þar er möguleiki á að bæta við herbergi.
Neðri hæð hússins hefur sérinngang, þar eru fimm herbergi, öll rúmgóð með parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, innréttingu og salerni.
Eldhús er rúmgott, viðar innrétting, búr og parket á gólfi.
Þvottahús hefur flísar á gólfi.
 
Húsið býður því upp á marga nýtingarmöguleika t.a.m. sem stórt einbýli, einbýli með aukaíbúð eða tvær góðar íbúðir og er möguleiki á góðum leigutekjum.
Endurbætur á húsinu að innan áttu sér stað árið 2022 þar sem m.a. var endurnýjað að hluta baðherbergin, eldhús og gólfefni.
Komið er að viðhaldi á húsinu að utan en ganga þarf frá lagfæringu á gluggum auk þess sem mála þarf húsi og þak.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun Suðurnesja
89.900.000 kr.349 þ./m²
+9,6% á 2 árum
27. febrúar 2025Þinglýstur kaupsamningur
82.000.000 kr.318 þ./m²
−7,9% á 1 ári
24. júní 2024Þinglýstur kaupsamningur
89.000.000 kr.345 þ./m²
+48,3% á 2 árum
19. maí 2022Þinglýstur kaupsamningur
60.000.000 kr.233 þ./m²
+106,9% á 1 ári
30. nóvember 2021Þinglýstur kaupsamningur
29.000.000 kr.113 þ./m²
+3,6% á 1 ári
20. september 2021Fyrsta sala
28.000.000 kr.109 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Melbraut 3

250 Garður
89.900.000 kr.349 þ./m²
Einbýlishús9 svefn · 3 bað
Byggingarár1943TegundEinbýlishúsStærð257,6 m²Herbergi8FasteignanúmerF20956391Fasteignamat70.500.000 kr.Brunabótamat105.150.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun Suðurnesja
HeimilisfangHafnargata 50, 230 ReykjanesbærSími420-4050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑