fasteignasölur.is
Hallgerðargata 13
1 af 19

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til leigu frábært skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í Sjávarborg, 105 Reykjavík, um 458,3 m² með sameign. Einstakt útsýni er af öllum hæðum hússins. Laust strax.
Staðsetning er frábær, rétt við Borgartún og stutt frá miðbænum.


Mögulegt er að leigja 736,3 m² rými, 458,3 m², 355 m² eða alla hæðina 1.549,6 m².
Húsnæðið er innréttað sem skrifstofuhúsnæði. Fjöldi lokaðra skrifstofuherbergja og fundarherbergja. Mögulegt er að gera breytingar á húnæðinu skv. nánara samkomulagi. 

Sérnotarými á 3. hæð eru 366,9 m², sameignarhlutdeild er 75,5 m² og geymslur í kjallara 15,9 m². Samtals telst hið leigða því vera 458,3 m²
Einstakt útsýni er af hæðinni.

Ýmsir möguleikar eru á skiptingu rýmisins í opin vinnurými, lokaðar skrifstofur/fundaherbergi.
Möguleiki er á að aðgangsstýra lyftum fyrir hverja hæð í húsinu.

Inngangur í kjallara er bjartur og stór og virkar eins og aðalinngangur.
Í kjallara hússins eru hjólreiðageymslur og búningsaðstaða með sturtum. Úr bílageymslu í kjallara ganga svo tvær lyftur. Mikið er af bílastæðum í kjallara sem er samfelldur undir öllu hverfinu.

Húsið er hannað af heimsfrægum arkitektunum Schmitd Hammer Lassen ásamt VA arkitektum (hönnuðir Svarta demantsins í CPH og nýja Alþjóða glæpadómstólsins í Haag).

Hafðu samband við Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 861-0511, magnus@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Hallgerðargata 13

105 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2021TegundAtvinnuhúsnæðiStærð458,3 m²FasteignanúmerF572233
Skráð hjá
Jöfur atvinnuhúsnæði
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑