fasteignasölur.is
Birkilundur 50B
1 af 17

Um eignina

Til sölu íbúðarhúsalóðin Birkilundur 50B í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

Lóðin er 4683,9 fm að stærð og er skipulögð sem íbúðarhúsalóð.

Samkvæmt skipulagsskilmálum er heimilt að byggja eitt íbúðarhús og tvö aukahús á lóðinni. Heildarbyggingarmagn má vera allt að 250 fm. og skal byggingarefni vera timbur eftir því sem kostur er.

Vegur er að lóðinni og stutt er í rafmagn og vatn.

Hverfið Birkilundur er í Sauraskógi og er þar blönduð byggð sumarhúsa og íbúðarhúsa.

Skemmtilegar og fjölbreyttar gönguleiðir eru á svæðinu sem er kjarri vaxið. Þá eru m.a.  á svæðinu veitingahús (Stundarfriður), hestaleiga  og fargufa.  

Lóðin er  ca. 10 km. sunnan við Stykkishólm þar sem eru m.a. sundlaug, verslanir,  golfvöllur og góð veitingahús.

Birkilundur 50B

340 Stykkishólmur
7.000.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF2539456Fasteignamat2.400.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Snæfellsness
HeimilisfangAðalgata 3, 340 StykkishólmurSími438-1199

Allar 17 myndir

Upp ↑