fasteignasölur.is

Um eignina

Skarðshlíð 36.- Falleg og mikið uppgerð 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýli í Þorpinu - Stærð 109,0 m²
Vel staðsett nálægt íþróttasvæði Þórs og stutt í grunn- og leikskóla, sem og aðra þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson sími 888-6661 eða siggithrastar@kaupa.is

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, eldhús, stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla innan íbúðar. Sameiginleg geymsla er í kjallara.

Forstofa er með opnu fatahengi, en góður forstofuskápur er á gangi. Harðparket á gólfi
Eldhús er með nýlegri ljósri innréttingu og borðkróki. Flísar á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi en tvö eru með fataskápum. Gengið er úr hjónaherbergi út á steyptar svalir.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, upphengdu wc og baðkari með glervæng og sturtutækjum. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi.
Geymsla er inn af þvottahúsi, þar eru hillur á veggjum. 

Annað:
- Hver íbúð er með sér geymslu/fataskáp í anddyri.
- Sameiginleg geymsla með þremur íbúðum er í kjallara.
- Myndadyrasími. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skarðshlíð 36 íbúð 302

603 Akureyri (utan Glerár)
52.900.000 kr.485 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1965TegundFjölbýlishúsStærð109 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21504001Fasteignamat42.800.000 kr.Brunabótamat49.150.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál