fasteignasölur.is
Eddufell 6
1 af 23

Um eignina

Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna: Falleg og björt stúdíó íbúð á 2.hæð í vönduðu nýju lyftuhúsi. EIGNIN ER SKRÁÐ SEM ATVINNUHÚSNÆÐI (engin vsk kvöð) en uppfyllir byggingarreglugerð um íbúðarhúsnæði. Eignin sem er í heildina skráð 48,9 fm og skiptist í opið rými með eldhúsi, stofu/herbergi með útgengi á svalir og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Vandaðar innréttingar, sérsmíðaðar frá viðurkenndum framleiðanda. Hvítar innihurðir frá Birgisson með svörtum húnum. Fallegt harðparket á alrými, baðherbergi flísalagt. Nánari upplýsingar veitir Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða lilja@gimli.is

Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninni


Forstofa: með fataskáp, harðparket á gólfi.
Alrými: Íbúðin er mjög opin og björt, eldhús, stofa/herbergi með útgengi á skjólgóðar svalir. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá viðurkenndum framleiðanda, UAB Koalos Medis (Litháen). Skápar í eldhúsi ná upp í loft og eru í viðarlit. Mjúklokur á skúffum og skápahurðum. Spanhelluborð, blástursofn, uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalögð "walk in" sturta með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með handlaug og speglaskáp. Tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Djúpgámar á lóð.
Næg bílastæði eru við húsið. 

VÖNDUÐ EIGN ÞAÐ SEM RÍK ÁHERSLA HEFUR VERIÐ LÖGÐ Á FALLEGA HÖNNUN, EFNISVAL OG FRÁGANG. STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU, S.S. GRUNNSKÓLA, FRAMHALDSSKÓLA, SUNDLAUG, LÍKAMSRÆKT OG VERSLANIR AF ÝMSU TAGI. SPENNANDI UPPBYGGING AÐ FARA AF STAÐ Í HVERFINU.

Eddufell 2-6 er vandað lyftuhús á 6 hæðum. Eignirnar sem eru 22 eru af ýmsum stærðum, allt frá stúdóíbúðum/vinnustofum til 4ra herbergja Penthouse íbúða með tvennum svölum.

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Eddufell 6

111 Reykjavík
44.900.000 kr.918 þ./m²
Fjölbýlishús1 bað
Byggingarár1981TegundFjölbýlishúsStærð48,9 m²Herbergi1InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20522212Fasteignamat6.320.000 kr.Brunabótamat16.900.000 kr.
Skráð hjá
Gimli
HeimilisfangSkipholt, 35 Rvk. - Eyravegur 29, Selfoss, 105 Reykjavík - 800 SelfossSími570-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑