fasteignasölur.is
Akurbraut 16
1 af 38

Um eignina

EIGNIN ER SELD MEÐ HEFÐBUNDNUM FYRIRVARA!

VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ!

Hrönnin fasteignasala kynnir: Fallegt og bjart 4ra herbergja endaraðhús á einni hæð með bílskúr, alls 135,4 fm, þar af bílskúr 29,7 fm. Góð afgirt verönd og heitur pottur - Frábær staðsetning í göngufæri við skóla og leikskóla - Stutt í stofnæðar.

Nánari lýsing: 

Komið inn í rúmgóða forstofu, skápar og flísar á gólfi. 
Stofa, borðstofa og sólkáli í opnu rými. Inn af sólaskála er ágætt svefnhbergi ( á teikningu merkt sem geymsla).  
Frá sólskála er gengið út á afgirta skjólsæla verönd með heitum potti. 
Eldhús er inn af borðstofu, gott skápapláss, ofn í vinnuhæð og helluborð. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.  Frá eldhúsi er útgengt út í garð framan við hús.. 
Svefnherbergisálma með ágætu herbergi og skáp. Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu, upphengt salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum. 
Stórt og bjart hjónaherbergi með góðu skápaplássi. 
Inn af forstofu er þvottahús, með vaski, hillum og snúrum. Það er innangengt í bílskúrinn. Bílskúrinn er með rafdrifinni hurð, millilofti og lökkuðu gólfi, ágætt skápapláss. Gott upphitað bílaplan fyrir utan hús fyrir tvo bíla. 
Fasteignamat 2026: 80.850.000,-
Sólskáli var yfirfarin og lagaður fyrir rúmu ári og nýlegt harðparket er á allri íbúðinni, að undanskildum bílskúr og votrýmum. 
Eignin er laus til afhendingar þremur mánuðum eftir kaupsamning eða skv. samkomulagi. 
Húsið hefur verið leigt út til ferðamanna og möguleiki að kaupa hluta innbús með eigninni 

Allar nánari upplýsingar veitir Gyða Gerðarsdóttir, lögg. fasteignasali & leigumiðlari í s. 695-1095. gyda@hronnin.is
 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hrönnin, fasteignasala og leigumiðlun
83.500.000 kr.617 þ./m²
+2,1% á 1 ári
12. desember 2025Þinglýstur kaupsamningur
81.800.000 kr.604 þ./m²
+103,0% á 7 árum
15. október 2018Þinglýstur kaupsamningur
40.300.000 kr.298 þ./m²
+31,8% á 3 árum
23. nóvember 2015Þinglýstur kaupsamningur
30.573.000 kr.226 þ./m²
+19,4% á 9 árum
5. janúar 2007Fyrsta sala
25.600.000 kr.189 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Akurbraut 16

260 Njarðvík
83.500.000 kr.617 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundRað-/parhúsStærð135,4 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF22801561Fasteignamat80.850.000 kr.Brunabótamat66.450.000 kr.
Skráð hjá
Hrönnin, fasteignasala og leigumiðlun
HeimilisfangÁlfaskeið 42, 220 HafnarfjörðurSími695-1095

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑