fasteignasölur.is
Garðarsbraut 51
1 af 24

Um eignina

Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 51A, 640 Húsavík

Garðarsbraut 51A, er parhús á tveimur hæðum byggt árið 1966. Eignin er byggð árið 1966 og er 209,1 m2 en þar af bílskúr 52,5 m2. 

Nánari Lýsing

Jarðhæð:
Komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofunni tekur við hol sem tengir saman öll önnur rými á jarðhæðinni. Stofan er með stórum gluggum og nýtist bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa. Eldhúsið er með eldri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, við hliðin á eldhúsinu er búr. Á jarðhæðinni er einnig þvottahús sem er með útgengi út í garð og svo lítið baðherbergi sem er með Wc og vask. 
Efri hæð: Á hæðinni eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, þar af eru tvö með fataskáp. Útgengi er út á svalir í einu herbergjanna. Baðherbergið er með dúk á gólfi, sturtuklefa, baðkari, Wc og vask. 

Bílskúr: er 52,5 m2 og því mjög rúmgóður með steyptu gólfi og flekahurð. 
Að utan: steypt bílastæði alveg upp að bílskúrnum og svo er gróinn garður að aftan verðu. Að baka til er timburverönd á tveimur hæðum.
Íbúðin er að mestu leyti í upprunanlegu ástandi. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Garðarsbraut 51

640 Húsavík
Tilboð
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1966TegundFjölbýlishúsStærð209,1 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF21526351Fasteignamat55.150.000 kr.Brunabótamat86.300.000 kr.
Skráð hjá
Lögeign
HeimilisfangGarðarsbraut 26, 640Sími865-7430

Allar 24 myndir

Upp ↑