fasteignasölur.is
Drápuhlíð 30
Nýtt
1 af 184

Um eignina

Miklaborg og Böddi lgf. kynna:

Glæsileg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum – Drápuhlíð 30

Falleg og björt íbúð á annarri hæð með sérinngangi í vel við haldnu fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Hlíðunum.

Eignin er sérstaklega rúmgóð, vel skipulögð og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Auðvelt er að breyta íbúðinni í þannig að hún verði 3 svefnherbergi með einfaldri tilfærslu á eldhúsi.

Nánari lýsing:

Forstofa: Dúkur á gólfi með góðu plássi fyrir fatahengi.

Stofur: Tvær samliggjandi stofur með nýlegu harðparketi. samtals 34 fm.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og nýlegu harðparketi á gólfi.

Barnaherbergi: Bjart og snyrtilegt með nýlegu harðparketi.

Baðherbergi: Flísalagt með baðkari.

Eldhús: Góð eldhúsinnrétting. Með einfaldri aðgerð er hægt að færa eldhúsið inn í stofuna, sem myndar opið og rúmgott rými með báðum stofunum – samtals um 34 fm.

Svalir: Útgengt úr stofu á suðursvalir sem hafa verið endurgerðar og stækkaðar. Hægt er að ganga þaðan niður í garð.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara.

Þvottahús: Sameiginlegt í kjallara.

Eignin samkvæmt skráningu hjá HMS:

Fasteignanúmer: 203-1136

Birt stærð: 107,9 fm

Heimilisfang: Drápuhlíð 30, Reykjavík

Viðhald og endurbætur:

Dren- og skolplagnir voru endurnýjaðar áður en núverandi eigandi keypti eignina, samkvæmt fyrri eiganda.

Vorið 2022 hófu Ás-Smíði umfangsmiklar viðgerðir að utan: múrviðgerðir, steining, endurnýjun á gluggum og hurðum (svala- og útidyrahurðum).

Svalir voru endurgerðar og stækkaðar.

Verkinu lauk í nóvember 2024.

Skipt var um alla glugga í húsinu sem þurfti að endurnýja, þar með talið glugga á hlið hússins og þá sem tilheyra sameign.

Staðsetning og umhverfi:

Drápuhlíð 30 stendur á rólegum og grónum stað í Hlíðunum, í nálægð við skóla, leikskóla, verslanir og þjónustu.

Stutt er í miðbæinn, Háskólann í Reykjavík og gönguleiðir í Öskjuhlíð og Klambratún.

Nánari upplýsingar:


Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
97.000.000 kr.899 þ./m²
+90,2% á 6 árum
29. apríl 2020Þinglýstur kaupsamningur
51.000.000 kr.473 þ./m²
+34,6% á 5 árum
27. maí 2015Þinglýstur kaupsamningur
37.900.000 kr.351 þ./m²
+33,0% á 8 árum
13. september 2007Fyrsta sala
28.500.000 kr.264 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Drápuhlíð 30

105 Reykjavík
97.000.000 kr.899 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1947TegundFjölbýlishúsStærð107,9 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2031136Fasteignamat80.350.000 kr.Brunabótamat49.700.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 184 myndir

Upp ↑