1 af 6
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Frakkastíg 1 er sjö hæða íbúðahús. Um er ræða einstakt hús byggt af umhverfisábyrgð þar sem gæði hönnunar mæta umhverfisvænum lausnum. IÐA fasteignir vinnur verkefnið í samstarfi við Sap arkitektar/Lendager og Framkvæmdafélagið Arnarhvol.Heimasíða
ÍBÚÐ 201
Íbúðin snýr að sjónum, hún er neðarlega í húsinu og mannlífið sést vel úr öllum áttum.
Listaverkið Sól - farið eftir Jón Gunnar Árnason blasir við er setið er í útskotsglugga norðurhliðar. Þar er einstakt útsýni og tilvalið að tylla sér með bók undir lesljósi.
Eldhúsið er opið og samtengt stofu. Í eldhúsi eru tveir ofnar, hefðbundinn ofn og ofn með val um stillingu á örbylgjueldun eða venjubundna eldun.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð úr hnotu með stáli í borðplötu og vaski. Eyjan er sérsmíðuð úr stáli, með ávölum brúnum á hliðum og borðplötu sem mætir neðri skápum eyjunnar með fallegri hönnun.
Eldavél er á eyju með innbyggðan háf. Stofuna prýðir arinn á austurhlið og hefur hver íbúð sér loftun. Á austurhlið íbúðar eru svalir með útsýni í norðvesturátt að Esju og Móskarðshnjúkum.
Hjónasvíta hefur innbyggð veggljós yfir rúmgafli, tvöfölda skápa og þaðan er innangengt á flísalagt baðherbergi með innbyggðum speglaskápum og innréttingu úr granít.
Sturta og handlaugartæki eru innbyggð frá Grohe og sturtuhaus er festur í loft.
Gangur íbúðar er klæddur veggpanil úr hnotu sem sameinast eldhúsi auk þess sem fataskápur og setbekkur í anddyri eru einnig úr hnotu.
Rúmgott svefnherbergi með skápum er næst anddyri. Á móti er annað baðherbergi og inn af því er þvottahús.
Allir skápar íbúðar er sérsmíðaðir fyrir hvert rými og ná upp í loft. Möguleiki er á þriðja svefnherbergi eða skrifstofu með því að loka hluta stofunnar af.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Íbúðinni fylgir lokaður bílskúr í bílakjallara og inn af honum er geymsla íbúðar.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is.
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson Lögg.fasteignasali, í síma 864-5464, tölvupóstur gudlaugur@eignamidlun.is.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Frakkastígur 1 íb. 201
101 Reykjavík
Tilboð
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð147,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2539680
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 6 myndir
Upp ↑




