1 af 8
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Frakkastíg 1 er sjö hæða íbúðahús. Um er ræða einstakt hús byggt af umhverfisábyrgð þar sem gæði hönnunar mæta umhverfisvænum lausnum. IÐA fasteignir vinnur verkefnið í samstarfi við Sap arkitektar/Lendager og Framkvæmdafélagið Arnarhvol.HEIMASÍÐA
ÍBÚÐ 402
Íbúðin snýr í suður að gamla franska spítalanum sem nú er Tónlistarskóli Reykjavíkur.
Íbúðin er afar björt og hefur glugga og stórar þaksvalir með rennihurðum sem veita birtu úr þremur áttum og stórkostlegt útsýni yfir Hallgrímskirkju.
Í anddyri eru tvöfaldir fataskápar og til vinstri úr anddyri er rúmgott svefnherbergi með fataskápum og fullbúnu baðherbergi þar fyrir innan.
Á gangi er þvottahús með harmonikkuhurðum sem opnast upp á gátt.
Rúmgott baðherbergi er við hlið þvottahúss. Bæði baðherbergi íbúðar hafa innbyggða sturtu og handlaugartæki frá Grohe og sturtuhaus er festur í loft. Speglaskápar með innfelldri lýsingu eru fyrir ofan vaskborð og innréttingu úr granít. Hjónaherbergi hefur þrefalda fataskápa, er rúmgott og listilega hannað.
Eldhúsið er opið og samtengt stofu þar sem eru þaksvalir og útskotsgluggi sem veita hvort tveggja mikla birtu. Í eldhúsi eru tveir ofnar, hefðbundinn ofn og ofn með val um stillingu á örbylgjueldun eða venjubundna eldun.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð úr hnotu með stáli í borðplötu og vaski, eyjan er sérsmíðuð úr stáli með ávölum brúnum á hliðum og borðplötu sem mætir neðri skápum eyjunnar með fallegri hönnun.
Eldavél er á eyju með innbyggðan háf. Eldhúsinnréttingin býr yfir miklu skápaplássi, sem og eyjan. Allir skápar í íbúðinni ná upp í loft og eru sérsmíðaðir inn í hvert rými.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Íbúðinni fylgir lokaður bílskúr í bílakjallara og inn af honum er geymsla.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is.
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson Lögg.fasteignasali, í síma 864-5464, tölvupóstur gudlaugur@eignamidlun.is.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Frakkastígur 1 íb. 402
101 Reykjavík
Tilboð
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð155 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2539686
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 8 myndir
Upp ↑






