1 af 8
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Frakkastíg 1 er sjö hæða íbúðahús. Um er ræða einstakt hús byggt af umhverfisábyrgð þar sem gæði hönnunar mæta umhverfisvænum lausnum. IÐA fasteignir vinnur verkefnið í samstarfi við Sap arkitektar/Lendager og Framkvæmdafélagið Arnarhvol.HEIMASÍÐA
ÍBÚÐ 302
Íbúðin snýr í suður í átt að Hallgrímskirkju og gamla franska spítalanum sem nú er Tónlistarskóli Reykjavíkur.
Íbúðin er afar björt, hefur átta glugga sem veita birtu úr þremur áttum. Í anddyri eru tvöfaldir fataskápar.
Til vinstri handar úr anddyri er rúmgott svefnherbergi með skápum og baðherbergi með þvottaaðstöðu þar til hliðar.
Tvö önnur svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgott hjónaherbergi með tvöfalda skápa og minna barnaherbergi eða skrifstofa sem hefur rúmgott baðherbergi þar við.
Bæði baðherbergi íbúðar hafa innfeld Grohe handlaugartæki og sturtu í vegg auk þess sem sturtuhaus er festur í loft. Speglaskápar með innfelldri lýsingu eru fyrir ofan vaskborð og innréttingu úr granít.
Rúmgott sjónvarpshol tengist inn í stofu sem hefur viðarklædda veggi. Í stofunni eru svalir og útskotsgluggar sem veita góða birtu í rýmið.
Eldhúsið er opið og samtengt stofu. Þar eru tveir ofnar, hefðbundinn ofn og ofn með val um stillingu á örbylgjueldun eða venjubundna eldun.
Innrétting eldhússins er sérsmíðuð úr hnotu með stáli í borðplötu og vaski, eyjan er jafnframt sérsmíðuð úr stáli, með ávölum brúnum á hliðum og borðplötu sem mætir neðri skápum eyjunnar með fallegri hönnun.
Eldavél er á eyju með innbyggðan háf. Eldhúsinnréttingin hefur mikið skápapláss sem og eyjan.
Allir skápar í íbúðar ná upp í loft og eru sérsmíðaðir í hvert rými.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Íbúðinni fylgir lokaður bílskúr í bílakjallara og inn af er geymsla.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson Lögg.fasteignasali, í síma 864-5464, tölvupóstur gudlaugur@eignamidlun.is.
Kjartan Hallgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Frakkastígur 1 íb. 302
101 Reykjavík
Tilboð
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð182,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2539684
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 8 myndir
Upp ↑






