fasteignasölur.is
Geitagerði 2 íbúð 101
1 af 11

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is kynna:

ÍBÚÐ 101
Vel skipulögð tveggja herbergja 48,3 fm endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Geitagerði 2 að Hólum í Hjaltadal.
Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

✅ Íbúð á hinum sögfræga stað að Hólum í Hjaltadal
✅ Einstök nálægð við náttúruna og háskólasamfélagið að Hólum
✅ Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með sér inngangi
✅ Sér þvottahús og geymsla innan íbúðar 


Nánari lýsing
Forstofa: Dúkur á gólfi. 
Þvottahús: Inn af forstofu, dúkur á gólfi. 
Geymsla: Inn af þvottahúsi, dúkur á gólfi. 
Alrými: Er með eldhúsi og stofu. Eldhúsinnrétting á einum vegg með eldavél með helluborði, gufugleypir yfir og tengi fyrir uppþvottavél. Útgengi á svalir í suðvestur. 
Svefnherbergi: Með fataskáp, dúkur á gólfi. 
Baðherbergi: Upphengt salerni, handlaug og sturta, dúkur á gólfi og í kringum sturtu. 

Staðsetning
Eignin er staðsett að Hólum í Hjaltadal, einum sögufrægasta stað landsins og hefur verið biskupssetur um aldir. Háskólinn á Hólum hefur stækkað ört á síðustu árum og samfélagið með. 

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Geitagerði 2 íbúð 101

551 Sauðárkrókur (dreifbýli)
16.900.000 kr.342 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð49,4 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22723471Fasteignamat16.400.000 kr.Brunabótamat23.400.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑