fasteignasölur.is
Straumhella 6 bil 102
1 af 26

Um eignina

Glæsilegt 132 fm bil í nýju atvinnu- / iðnaðarhúsnæði við Straumhellu 6 í Hafnarfirði. Kaupandi yfirtekur vsk-kvöð á eigninni (6.680.000 kr.).
Eignin skiptist þannig að neðri hæðin (salur) er 91,9 fm og lager (efri hæð) er 40,1 fm. 

Ath. myndirnar geta verið af öðru svipuðu bili í húsinu.

Bilið er í útleigu til 30.04.2026 og getur væntanlegur kaupandi yfirtekið leigusamning, nánari upplýsingar má nálgast hjá fasteignasala.

Nánari upplýsingar um bil 102: Ein gönguhurð og ein innkeyrsluhurð er í bilið. Innkeyrsluhurðin er 4m á breidd og 4m á hæð. 
Salurinn er 6,8m á breidd og allt að 12,7m á lengd. Kaffistofa og salerni eru í salnum og stigi upp á 40,1 fm milliloft/efri hæð. Innst í bilinu er hurð inn á sameiginlegan gang (Brunaútgangur). 

Stærðir: 120,1 - 541,0 fm.
Verð: 48,1 - 186,9 mkr.

- Sökklar, útveggir og berandi innveggir eru úr forsteyptum einingum. 
- Milliplötur eru úr filigran plötum með ásteypulagi.
- Þak er borið upp með límtrésbitum og yleiningum frá Límtré Vírnet. 
- Húsið er upphitað með hefðbundnum ofnum og með hitablásurum í stærri bilum.
- Léttir veggir og milliloft verður málað í ljósum lit. Aðrir veggir og gólf verða með steypuáferð. 
- Gólf verða vélslípuð
- Salerni er í öllum rýmum, salernisskál verður frágengin ásamt handlaug. 
- Kaffistofa er í öllum rýmum, hún skilast með skápum, borðplötu og skolvaski. 
- Lóð verður frágengin, bílastæði og aðkoma malbikuð.
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda sem nálgast má með því að smella hér

Byggingaraðili er traustur verktaki: MótX ehf. (www.motx.is)

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is og Stefán Rafn Sigurmannsson löggiltur fasteignasali í s. 655-7000 / stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Straumhella 6 bil 102

221 Hafnarfjörður
52.900.000 kr.401 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár2023TegundAtvinnuhúsnæðiStærð132 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25255224Fasteignamat43.200.000 kr.Brunabótamat43.950.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑