1 af 6
Um eignina
Spánarheimili kynnir: Lúxus villur í byggingu í Punta Prima nálægt allri þjónustu. Stutt er í búðir, veitingastaði og verslunarmiðstöðvar. Aðeins eru 3 mínútur að labba að næstu búð og allir veitingastaðir eru staðsettir innan við 300m radius. Einnig er stutt í golfvelli og bara 8 mínútur að keyra að nálægasta golfvelli.
Villurnar eru á tveim hæðum og eru 139 m2 með þrem svefnherbergjum og tveim baðherbergjum. Á fyrstu hæð er stórt eldhús opið til stofu og borðstofu, úr stofu er gengið út á 26m2 verönd og þaðan er gengið út í garð með einkasundlaug. Í garðinum er innkeyrsla fyrir bíl og einnig er hægt að vera með yfirbyggt grill svæði. Á fyrstu hæð eru líka tvö stór svefnherbergi, eitt baðherbergi og þvottahús.
Á annarri hæð er 22 m2 master svíta og í herberginu er stórt fataherbergi og einka baðherbergi. Frá master svítunni er hægt að ganga út á stórar 49 m2 þaksvalir.
Um er að ræða frábæra staðsetningu á Costa Blanca ströndinni í Punta Prima.
Fyrir nánari upplýsingar um eignirnar er hægt að finna á skrifstofu Spánarheimili eða í síma 558-5858.
Verð frá 550.000€.
---
Eignarnúmer: 2071
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/103458/luxury-villas-under-construction-in-punta-prima/
Spánarheimili kynnir - Punta Prima
1053 Spánn - Costa Blanca
95.200.000 kr.685 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð139 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Allar 6 myndir
Upp ↑




