fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Punta Prima
1 af 15

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsileg lúxus íbúðarblokk aðeins 100 m á strönd Punta Prima. Stutt er í flest alla þjónustu og aðeins nokkrar mínútur að ganga á næstu veitingastaði. Einnig eru um 5 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Hver íbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi en einnig er hægt að fá 3 svefnherbergja íbúðir. Íbúðirnar snúa allar í suður og eru með flottar svalir sem hafa glæsileg útýni til sjávar. Þessi blokk er í flottum kjarna þar sem verða 3 sameiginlegar sundlaugar og ein af þeim er upphituð. Innifalið í verði er bílastæði í kjallara, geymsla, loftkæling og gólfhiti á baðherbergjum. Verð frá 344.000€. --- Eignarnúmer: 2135 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/125557/apartment/new-build/spain/costa-blanca-south/punta-prima/punta-prima/

Spánarheimili kynnir - Punta Prima

1053 Spánn - Costa Blanca
75.300.000 kr.1.018 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð74 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 15 myndir

Upp ↑